[Gandur] Hin árlega útimessa að Esjubergi

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Wed Jun 24 16:43:00 GMT 2015


Nk. laugardag 27. júní kl. 13:00 verður útimessa að Esjubergi á Kjalarnesi. Sr. Þórhildur Ólafs prófastur Kjalarnessprófastsdæmis og sr. Gunnþór Ingason sérþjónustuprestur sjá um helgihald. Páll Helgason organisti spilar á harmonikku og félagar úr Karlakóri Kjalarness syngja. Messað verður á þeim stað þar sem fyrirhugað er að reisa útialtari til minningar og heiðurs þeirri kirkju sem Landnáma segir að Örlygur Hrappsson hafi reist um 900 og helgað heilögum Kolumkilla hinum írska dýrlingi.  Eftir messu geta kirkjugestir fengið sér kaffisopa og meðlæti í Fólkvangi.

Þessi viðburður er hluti af Kjalarnessdögum sem haldnir eru hátíðlegir í lok júní ár hvert. 

Messað verður á öðrum stað en tíðkast hefur. Fyrir þá sem koma úr höfuðborginni þá er það annar afleggjari til hægri þegar komið er upp úr Kollafirðinum. Þeir sem koma að vestan þá er þetta fyrsti afleggjari til vinstri þegar komið er fram hjá afleggjara Esjubergs. Íslenski fáninn verður settur við afleggjarann sem mun auðvelda fólki að rata á réttan stað. 

Verið velkomin á Kjalarnesið!

Fyrir hönd Sögufélagsins Steina á Kjalarnesi, Hrefna S. Bjartmarsdóttir s. 659-2876 




More information about the Gandur mailing list