[Gandur] Jólaglögg Félags þjóðfræðinga

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Sun Dec 13 10:36:14 GMT 2015


Kæru meðlimir

Til þess að enda dagskrá þessa misseris og þakka fyrir okkur
langar okkur að bjóða öllum félagsmeðlimum að „glögga“ smá með okkur.
Arndís var svo elskuleg að bjóða okkur heim til sín, hvað er jólalegra en
gestristnin spyrjum við nú bara!

Svanhvít gjalkeri hefur látið þau orð falla að hún sé besti jólaglöggari á
Íslandi og nú þarf hún að standa við stóru orðin.

Það verður allskonar jólakósý á boðstólnum, eitthvað fyrir skynfærin að
njóta; lykt, bragð, eyrnakonfekt og svo erum við auðvitað svo falleg svo
það ætti að vera nærandi fyrir augað.

Hlökkum til að jóla yfir okkur með ykkur!

Tími og staður: þriðjudagurinn 15. desember klukkan 19:30-20:00. Mímisvegi
6, 101 RVK, í kjallara.


More information about the Gandur mailing list