[Gandur] Fyrirlestur Félags þjóðfræðinga Benný Sif Ísleifsdóttir

Björk Hólm Þorsteinsdóttir holmbjork at gmail.com
Sat Dec 5 14:24:17 GMT 2015


Afsakið að tímasetningu vantar!

Fyrirlesturinn hefst klukkan 16.00 og reiknum við með að þetta taki
tæpa klukkustund með spurningum.

Bestu kveðjur
Björk Hólm



On Saturday, 5 December 2015, Rósa Þorsteinsdóttir <rosat at hi.is> wrote:

> Klukkan hvað skyldi þessi merki fyrirlestur verða haldinn?
>
> –R
>
> > On 03 Dec 2015, at 22:28, Félag þjóðfræðinga á Íslandi <
> felagthjodfraedinga at gmail.com <javascript:;>> wrote:
> >
> > Félag þjóðfræðinga á Íslandi kynnir í samstarfi við Þjóðminjasafn
> Íslands,
> > þriðja fyrirlestur vetrarins.
> > Fyrirlesturinn verður haldinn í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15, þriðjudaginn
> > 8. desember.
> >
> > Fyrirlesturinn er byggður á MA-ritgerð Bennýjar, Bínefni og brautargengi.
> > Um ættarnöfn og önnur kenninöfn, sem lokið var síðasta vor. Í ritgerðinni
> > rýnir Benný í viðhorf Íslendinga til ættarnafna, en einnig föður- og
> > móðurnafna.
> >
> > Benný rannsakaði ættarnöfn einnig í BA ritgerð sinni en hún ber nafnið:
> > „Það er nefnilega fínna að vera sen en dóttir.“ Ættarnöfn í íslensku
> > samfélagi.
> >
> > Að fyrirlestri loknum ætlum við að færa okkur yfir götuna, á Mikkeller &
> > Friends og halda áfram að ræða ættarnöfn, mannanafnanefnd og fleira
> > skemmtilegt sem upp vaknar.
> >
> > Ekkert kostar inn og fyrirlesturinn er að sjálfsögðu öllum opinn.
> > Hlökkum til að sjá ykkur öll!
> > _______________________________________________
> > Gandur mailing list
> > Gandur at listar.hi.is <javascript:;>
> > http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gandur
>
> _______________________________________________
> Gandur mailing list
> Gandur at listar.hi.is <javascript:;>
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gandur
>


More information about the Gandur mailing list