[Gandur] Draugar og tröll og ósköpin öll - norður á Ströndum

Sögusmiðjan sogusmidjan at strandir.is
Fri Sep 5 11:49:45 GMT 2014


Draugar og tröll og ósköpin öll!

Heilmikil þjóðtrúarkvöldvaka verður haldin í Sauðfjársetrinu í Sævangi
laugardagskvöldið 6. september og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.
Yfirskriftin á kvöldvökunni er Draugar og tröll og ósköpin öll. Verða haldin
nokkur skemmtileg og fróðleg erindi um þjóðtrú og þjóðsögur, auk þess mun
Íris Björg Guðbjartsdóttir á Klúku flytja eigin lög. Einnig verður
kynngimagnað kvöldkaffi á boðstólum sem enginn verður svikinn af.
Þjóðtrúarkvöldvakan er haldin í tengslum við sýninguna Álagablettir sem
hefur nú verið uppi á sviðinu í Sævangi í eitt ár og verður áfram uppi að
minnsta kosti út næsta sumar. Þar er fjallað í máli og myndum um
álagabletti, fornmannahauga og huldufólk á Ströndum.  

Eftirtalin erindi verða flutt á þjóðtrúarkvöldvökunni:

 Jón Jónsson, þjóðfræðingur og menningarfulltrúi á Kirkjubóli - Afturgöngur
og aðrir ættbálkar drauga  Guðlaug G. I. Bergsveinsdóttir, þjóðfræðinemi á
Gróustöðum – Fjársjóður og feigð í fiðurfénaði  Dagrún Ósk Jónsdóttir,
íslensku- og þjóðfræðinemi á Kirkjubóli – Gengið í fossinn: Álög, skrímsli
og vatnavættir  Magnús Rafnsson, forstöðumaður Þjóðfræðistofu og
sagnfræðingur á Bakka - Trunt, trunt og tröllin á Ströndum

Frítt er inn á kvöldvökuna sjálfa, en í boði verður dulmagnað kvöldkaffi á
kr. 1.500.- fyrir fullorðna. Einnig er frítt inn á sýningar safnsins, þar á
meðal list- og sögusýninguna Álagablettir. Einnig nýja sérsýningu á
Sauðfjársetrinu um Brynjólf Sæmundsson sem var héraðsráðunautur á Ströndum í
meira en 40 ár, en hún var opnuð á Íslandsmótinu í hrútaþukli sem haldið var
í ágúst. 

Dagrún Ósk Jónsdóttir hefur umsjón með þjóðtrúarkvöldvökunni og er kynnir
kvöldsins.





More information about the Gandur mailing list