[Gandur] Þjóðsagnasafn Maurers í forsölu

Rósa rosat at hi.is
Sat Nov 8 14:48:56 GMT 2014


Á næstunni er ætlunin að gefa út þjóðsagnasafn dr. Konrads Maurers, sem ferðaðist um Ísland sumarið 1858, eins og kunnugt er, og safnaði meðal annars þjóðsögum, sem hann gaf út á þýsku árið 1860 undir titlinum Isländische Volkssagen der Gegenwart. Áður höfðu íslenskar þjóðsögur aðeins komið út í lítilli bók sem þeir Magnús Grímsson og Jón Árnason höfðu safnað til. Maurer hafði sannarlega mikil áhrif á þjóðsagnasöfnun því m.a. gerðist hann hvatamaður þess, að þeir félagar, Jón Árnason og Magnús Grímsson, héldu áfram söfnun sinni og bauðst til að útvega útgefanda í Þýskalandi. Efnisflokkun hans á íslenskum þjóðsögum hefur einnig orðið fyrirmynd flestra útgefinna þjóðsagnasafna frá því safn hans kom út.

Margir telja, að óathuguðu máli, að Jón Árnason hafi þýtt eða endursagt allar sögurnar úr safni Maurers, en því fer fjarri og í safni Maurers er að finna sagnir sem hafa ekki birst annars staðar. Það var því löngu orðið tímabært að þýða safn hans yfir á íslensku og það hefir Steinar Matthíasson nú tekið sér fyrir hendur. Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ritstýrir bókinni og skrifar inngang. Áætlað er að bókin komi út í nóvember 2014 hjá Háskólaútgáfunni.

Þeim sem fá þetta bréf býðst að kaupa eintak af bókinni, Íslenskar alþýðusögur á okkar tímum, á sérstöku tilboðsverði með því að gefa áhuga sinn á því til kynna við  Háskólaútgáfuna fyrir 20. nóvember nk. Tilboðsverð í forsölu verða 3.900 krónur og verður sendingarkostnaður innifalinn en eintakið verður sent til kaupanda. Rafrænn reikningur mun birtast í heimabanka í kjölfarið.

Áhugasamir eru því beðnir að senda eftirfarandi upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang á netfangið: styrmir at hi.is,  merkt Maurer; eða í pósti til: Háskólaútgáfan, Dunhaga 18, 107 Reykjavík.


More information about the Gandur mailing list