[Gandur] Auglýst eftir fræðimanneskju

Rósa rosat at hi.is
Thu Jun 5 18:14:37 GMT 2014


> Gljúfrasteinn, Hönnunarsafn Íslands
> 
> og Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
> 
> Rannsóknarverkefni
> 
>  
> 
> Gljúfrasteinn, Hönnunarsafn Íslands og Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, auglýsa eftir fræðimanneskju til að vinna að rannsókn um sögu og tilurð íslensku lopapeysunnar.
> 
> Miðað er við þriggja mánaða verkefni og að rannsóknarvinnan hefjist eigi síðar en 1. september 2014. Niðurstöðum skal skilað í skýrslu og með kynningu.
> 
>  
> 
> Hæfniskröfur:
> 
> Háskólapróf í hug- og félagsvísindum eða skyldum greinum.
> 
> Reynsla af svipuðum rannsóknarverkefnum gagnleg.
> 
> Umsækjandi þarf að geta starfað sjálfstætt.
> 
>  
> 
> Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Guðný Dóra Gestsdóttir, gudny at gljufrasteinn.is Verkefnislýsingu má einnig finna á heimasíðum safnanna: www.honnunarsafn.is    www.textile.is http://www.gljufrasteinn.is/is/um_gljufrastein/lopapeysuverkefnid/
> 
> Umsóknarfrestur er til 16. júní nk. og skal senda umsókn ásamt starfsferilskrá til Gljúfrasteins, b.t. Guðnýjar Dóru Gestsdóttur, Gljúfrasteini, 270 Mosfellsbæ, eða á netfangið: gudny at gljufrasteinn.is
> 



More information about the Gandur mailing list