[Gandur] Rannsókn þriggja safna á íslensku lopapeysunni

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Jun 4 13:40:33 GMT 2014


Lopapeysuverkefnið er samstarfsverkefni Gljúfrasteins,Hönnunarsafns Íslands og Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósisem nú óska eftir starfskrafti til þess að vinna að sérstakri rannsókn á lopapeysunni.

Verkefnið hefur það að markmiði að varpa ljósi á hönnunarsögu íslensku lopapeysunnar, þátt Auðar Sveinsdóttur Laxness og annarra kvenna sem sannarlega tóku þátt í þróun og hönnun peysunnar. Uppruni, hönnun og þróun íslensku lopapeysunnar og tengsl hennar við íslenska arfleifð verða kannaðir sérstaklega í rannsókninni sem mun hefjast eigi síðar en í september á þessu ári.

Þessir þættir hafa lengi vakið áhuga og athygli eins og nýleg umfjöllun um íslensku lopapeysuna í The Reykjavík Grapevine ber vott um. Söfnin þrjú vonast til þess að með frumkvæði þeirra að gerð sérstakrar rannsóknar á lopapeysunni megi varpa ljósi á uppruna hennar sem mögulega verður miðlað með sýningu að rannsókn lokinni.

Á síðu um verkefnið má nálgast frekari upplýsingar um það og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda um starfið.

Nánari upplýsingar: http://www.gljufrasteinn.is/rannsokn_thriggja_safna_a_islensku_lopapeysunni/


–––––––––––––––––––––––––––––––
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
dósent / Docent in Folkloristics
Háskóli Íslands / University of Iceland
Sími/Tel.: +354 5255416/+354 8680306
http://uni.hi.is/adalh/



More information about the Gandur mailing list