[Gandur] Kynning á Braga – óðfræðivef

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Jan 21 10:58:49 GMT 2014


Klukkan átta næstkomandi fimmtudagskvöld, 23. janúar,
heldur Kristján Eiríksson fyrirlestur um Braga – óðfræðivef í húsnæði Íslenska esperantosambandsins á Skólavörðustíg 6b. Hann mun einkum leggja áherslu á þau fjölbreytilegu not sem menn geta haft af vefnum önnur en til beinna rannsókna í bragfræði, svo sem í málfræði, orðabókargerð, bókmenntum og bókmenntasögu, þýðingarfræði, sagnfræði, þjóðfræði og tónlistarsögu.

Á eftir geta gestir keypt sér kaffi að hætti hússins á 500 krónur, borið fram spurningar og rætt málin.


More information about the Gandur mailing list