[Gandur] Kallað eftir tillögum að málstofum og erindum á 8. ráðstefnunni um íslenska þjóðfélagið

Laufey Haraldsdóttir laufey at holar.is
Fri Jan 17 16:50:42 GMT 2014


Það væri gaman að hitta ykkur á Hólum í vor!
bestu kveðjur,
Laufey


Norðan við hrun – sunnan við siðbót?

Kallað er eftir tillögum að málstofum og ágripum að erindum fyrir 8.
ráðstefnuna um íslenska þjóðfélagið, sem haldin verður í Háskólanum á Hólum
í Hjaltadal dagana 15.-16. maí 2014.

Fræðafólk úr öllum greinum hug- og félagsvísinda er hvatt til að senda
ágrip að erindum byggðum á eigin rannsóknum. Miðað er við 20 mínútna
erindi, eitt af hálfu hvers flytjanda og 10 mínútna umræður.
Yfirskrift ráðstefnunnar er ætlað að vekja athygli fremur en binda hug og
hendur þátttakenda, því er hún bæði tímanleg og tímalaus. Hún vísar til
vorra tíma eftir efnahagshrun sem varð með ólíkum hætti í norðri og suðri,
hún vísar til þeirrar orðræðu um siðbót í samfélaginu sem fylgdi í kjölfar
hrunsins. Hún vísar einnig til Hóla í Hjaltadal, í sveitinni sem einu sinni
var Norðan við stríð í orðum Indriða G. Þorsteinssonar og staðarins, sem
var sunnan við siðbót í nánd sinni við hina suðrænu kaþólsku.

Höfundar eru hvattir til að þróa erindi sín í birtingarhæfar greinar í
íslenskum fræðitímaritum að ráðstefnu lokinni. Því eru málstofustjórar
beðnir að huga að útgáfumöguleikum efnis í málstofu sinni og með hvaða
hætti málstofan getur orðið til að efla fræðilega orðræðu á viðkomandi
sviði hérlendis.

Við skipulag ráðstefnunnar verður lögð áhersla á að hún er tækifæri
fræðasamfélagsins um íslenska þjóðfélagið til að gefa og þiggja þekkingu,
hugmyndir, áskoranir og aðferðir. En fyrst og síðast; að fagna saman frjóum
rannsóknum um íslenska þjóðfélagið.

Tillögur að málstofum óskast eigi síðar en 3. febrúar 2014. Ágrip af
erindum (hámark 250 orð) óskast eigi síðar en 3. mars 2014.

Nánari upplýsingar og viðtöku tillagna og ágripa veitir Guðrún Helgadóttir
gudr at holar.is



-- 
______________________________________
Laufey Haraldsdóttir lektor/assistant professor
Ferðamáladeild/Department of Rural Tourism
Hólaskóli, háskólinn á Hólum/Holar University College
Island/Iceland
sími/tel: +(354) 455 6300, +(354) 455 6322, fax: +(354) 455 6301
http://www.holar.is


More information about the Gandur mailing list