[Gandur] Eva Þórdís - fyrirlestur í hádeginu í dag

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Wed Feb 19 10:38:54 GMT 2014


Minni á fyrirlestur Evu Þórdisar í dag kl. 12:05 í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins. Eva Þórdís Ebenezersdóttir, meistari í þjóðfræði, sem
fjallar um meistararitgerð sína, "Haltrað í tveimur heimum. Kortlagning
fötlunar í íslenskum 19.aldar sögnum.".

Frítt inn og allir velkomnir.

Úr útdrætti:
Helstu niðurstöður eru þær að í sögnunum má sjá margbreytileika íslensks
samfélags 19. aldarinnar í gegnum birtingarmyndir fötlunar þar sem þjóðtrú
er meðal annars notuð til að útskýra skerðingar fatlaðs fólks. Einnig má í
efninu sjá nokkra endurspeglun við staðalmyndir og ákveðnar ríkjandi
hugmyndir í garð fatlaðs fólks í upphafi 21. aldar. Sá fötlunarskilningur
sem virðist ríkjandi í sögnum er af yfirnáttúrulegum toga og hefur tenging
fatlaðs fólks og yfirnáttúrulegra afla áhrif á stöðu fatlaðs fólks í
samfélaginu og viðhorf í þeirra garð. Segja má að fatlað fólk á 19. öld
haltri á mörkum tveggja heima, raunheimsins og hins yfirnáttúrulega



More information about the Gandur mailing list