[Gandur] Fwd: Námskeið: Búðu til frjálsar rafbækur

Óli Gneisti Sóleyjarson oligneisti at gmail.com
Thu Feb 13 14:04:27 GMT 2014


---------- Forwarded message ----------
From: <ritstjori at rafbokavefur.is>
Date: 2014-02-13 14:02 GMT+00:00
Subject: Námskeið: Búðu til frjálsar rafbækur


Rafbókavefurinn býr til og dreifir gjaldfrjálst rafbókum á íslensku. Þetta
eru bækur sem eru komnar úr höfundarétti og bækur sem dreift er með leyfi
höfundarétthafa. Nú þegar eru 125 rafbækur aðgengilegar á vefnum.

Rafbókavefurinn vinnur bæði með léttefni og hámenningu. Af hámenningu má
nefna Þjóðsögur Jóns Árnasonar, Hómerskviður, Þúsund og eina nótt og
Heiðnu-Biblíuna.

Til að breyta prentaðri bók í rafbók þarf fyrst að mynda hana með
sérstökum bókaskanna. Næst breytir forrit myndunum í texta með svokölluðum
ljóslestri. Að lokum hjálpa sjálfboðaliðar við að lagfæra villur sem verða
alltaf þegar mynd er breytt í texta (sérstaklega þegar um er að ræða
sér-íslenska stafi).

Sjálfboðaliðar skrá sig í sérstakt vefkerfi þar sem þeir fá annars vegar
mynd af blaðsíðu og hins vegar ljóslesinn texta sem þeir geta leiðrétta
til samræmis við frumtextann.

Nú býður Rafbókavefurinn í samvinnu við Landsbókasafnið upp á námskeið þar
sem væntanlegum sjálfboðaliðum verður kennt á vefkerfið.

Námskeiðin verða þrjú og eru haldin á Þjóðarbókhlöðunni. Hægt er að skrá
sig á námskeiðin á Facebook.

Þriðjudagurinn 18. febrúar kl. 20:00
https://www.facebook.com/events/270442179782122/

Þriðjudagurinn 25. febrúar kl. 20:00
https://www.facebook.com/events/598039760279259/

Þriðjudagurinn 4. mars kl. 20:00
https://www.facebook.com/events/1464819783729446/


More information about the Gandur mailing list