[Gandur] FW: Þjóðfræði í Þekkingarsetri Suðurnesja
Terry Gunnell
terry at hi.is
Thu Oct 3 15:09:09 GMT 2013
Hjátrú og draumar í náttúrunni Miðvikudaginn 16. október frá kl.
20:00-22:00 í Þekkingarsetri Suðurnesja, Garðvegi 1, Sandgerði.
Ýmiss konar hjátrú hefur fylgt Íslendingum í gegnum aldirnar. Þó svo að
hjátrú hafi farið minnkandi á tímum tæknivæðingar og þróunar á hún sér enn
djúpar rætur í þjóðarsálinni. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hjátrú og
drauma sem tengjast dýrum og náttúrunni.
Kennari: Símon Jón Jóhannsson, þjóðfræðingur. Símon Jón hefur skrifað og
gefið út bækur um íslenska hjátrú og draumráðningar.
Skráning á viðburðinn fer fram hér: http://mss.is/namskeid/1344.aspx
Bestu kveðjur,
Hanna María Kristjánsdóttir
Forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja
Garðvegi 1
245 Sandgerði
hanna at thekkingarsetur.is
Tel. 423-7555, 695-1381
More information about the Gandur
mailing list