[Gandur] FW: Félag íslenskra fræða: Matreiðslukver frá 17. öld

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Mon Jan 28 14:44:10 GMT 2013


 

 

From: Jóhanna Katrín Friðriksdóttir [mailto:johannakatrin at gmail.com] 
Sent: 28. janúar 2013 13:20
To: forum at akademia.is
Subject: Félag íslenskra fræða: Matreiðslukver frá 17. öld

 

Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða

30. janúar 2013 kl. 20

Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Athygli er vakin á breyttri staðsetningu!


Katelin Parsons: Kóngurinn drekkur kryddað vín: Tvö íslensk matreiðslukver
frá 17. öld
 
Sautjánda öldin er ekki almennt talin blómaskeið íslenskrar matargerðar,
enda fyrst og fremst tengd við súrkál. Hér verður þó enginn þorramatur á
boðstólum heldur ljúffeng veisla að dönskum sið: tvö matreiðslukver frá
seinni hluta 17. aldar sem færa Íslendingum spennandi nýjungar á borð við
hveitibrauðsúpu og ferskt lambakjöt í saffrankrydduðu vínsoði.

Matreiðslukverin tvö hafa lengi legið í gleymsku, að hluta til vegna þess
hve efnið hlaut litla athygli þegar skráning þeirra fór fyrst fram. En
hvernig heimildir eru þessi uppskriftasöfn, og hvað segja þau okkur um
matarmenningu Íslendinga á 17. öld? Eru þau til vitnis um bjartsýni og
tilraunamennsku í eldhúsinu, þrá ákveðinna stétta til þess að færa mataræðið
í áttina að því sem þekkist hjá heldri mönnum í Norður-Evrópu – eða hreina
og eintóma vitfirringu?

Katelin Parsons er þýðandi og doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við HÍ. Hún
lauk MA-prófi í þýðingafræðum frá sama skóla árið 2010.



More information about the Gandur mailing list