[Gandur] FW: Opið fyrir umsóknir í stúdentastofu ReykjavíkurAkademíuni jan-apríl 2013

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Wed Jan 23 11:18:32 GMT 2013


 

 

From: Óli Hrafn [mailto:olihrafn at gmail.com] 
Sent: 11. janúar 2013 13:57
To: Skrifstofa RA
Cc: gammabrekka; gandur; forum; hi-starf; bifrost at bifrost.is; lhi at lhi.is;
sine at sine.is
Subject: Re: Opið fyrir umsóknir í stúdentastofu ReykjavíkurAkademíuni
jan-apríl 2013

 

Ennþá laus pláss fyrir tímabilið 1.jan til 30.apríl.

 

STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR


 
ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða
doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri
Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Hringbraut 121 í Reykjavík (sjá
<http://www.akademia.is/> www.akademia.is) á mjög góðu verði eða krónur
6.000.- á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. janúar 2013
til 30. apríl 2013.

Í boði er skrifborð í skrifstofu með öðrum auk aðgangs að sameiginlegum
rýmum Akademíunnar; eldhúsi, fundarherbergi og fyrirlestrasal. Þráðlaus
nettenging er í húsinu, sem og ljósritunarvél, faxtæki  og skanni, auk þess
sem bókasafn Dagsbrúnar er þar til afnota.  ReykjavíkurAkademían er
kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, ungra jafnt sem
þrautreyndra, á fjölmörgum sviðum hug- og félagsvísinda. Í upphafi dvalar er
reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA.

Stúdentaaðstaðan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda.
Auglýst er eftir umsóknum fyrir vorönnina, en næsta tímabil á árinu 2013 er
1. maí til 31. ágúst og það síðasta frá 1. september til 31. desember.  

Að lokinni fjögurra mánaða dvöl geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss
innan ReykjavíkurAkdemíunnar á almennu verði.

Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, eða
í tölvupósti:  <mailto:ra at akademia.is> ra at akademia.is. Ekki eru notuð
sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir að tilgreina stuttlega
viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk
almennra upplýsinga. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi mánudaginn 19.
desember og mun niðurstaða úthlutunarnefndar liggja fyrir áður en jólahátíð
gengur í garð.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða um netfangið
<mailto:ra at akademia.is> ra at akademia.is


 

-- 


Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561 <tel:%2B%20354%20562%208561> 
Fax: + 354 562 8528 <tel:%2B%20354%20562%208528> 
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is

 



More information about the Gandur mailing list