[Gandur] Discworld umræða með Dr. Jacqueline Simpson

Gerður Halldóra Sigurðardóttir ghs4 at hi.is
Fri Sep 7 15:00:09 GMT 2012


Föstudaginn 14. september kl. 17 ræðir Terry Gunnell við Dr. Jacqueline
Simpson, meðhöfund Sir Terry Pratchett að The Folklore of Discworld, um
Discworld og Sir Terry, á Súfistanum í bókabúð Máls og menningar á
Laugaveginum.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Dr. Simpson hefur verið aðdáandi Discworld-bókanna frá árinu 1988 og árið
1997 hitti hún rithöfundinn Terry Pratchett, þegar hann var að árita eina af
bókum sínum í heimabæ hennar. Síðan þá hefur hann leitað til hennar um
ráðleggingar og upplýsingar varðandi þjóðfræðileg efni í bækur sínar. Þau
gáfu saman út bókina The Folklore of

Discworld árið 2008.

Eftirfarandi tilvitnun er úr samtali milli Sir Terry Pratchett og dr.
Jacqueline Simpson, sem tekið var upp þann 26. ágúst 2010 á Hilton
Birmingham Metropole sem hluti af The Discworld Convention, af Katie Brown
og Julie Sutton:

„And I may say that it is a delight to be a folklorist and to work on
folklore because you never need worry whether the thing is true and accurate
or not. As soon as you can prove that somebody has said it and somebody else
has listened and repeated it, it doesn’t matter a tinker’s cuss whether it
ever happened or not. Did King Alfred burn the cakes? Who the hell cares,
the story’s what matters.“

Dr. Jaqueline Simpson (f. 1930) er virt fræðikona á sviði þjóðfræða og
fornnorrænna fræða. Hún lagði stund á enskar bókmenntir og miðaldaíslensku
við Bedford College í Lundúnarháskóla. Hún hefur komið að fjölda rannsókna
og útgáfu bóka, bæði sem sjálstæð fræðikona og í samstarfi við aðra
fræðimenn. Helsta áhugasvið hennar innan þjóðfræðinnar eru staðbundnar
þjóðsagnir og hefur hún meðal annars staðið að þýðingum og útgáfum á sögnum
frá Íslandi, Englandi og Skandinavíu. Þýðing hennar á íslenskum sögnum yfir
á enska tungu er ein sú besta sem til er á því tungumáli og sú útgáfa
mikilvægt innlegg í rannsóknir á íslenskum sögnum. Hún hefur einnig stundað
rannsóknir, birt greinar og gefið út bækur um fornnorræn fræði, meðal annars
bókina Everyday Life in the Viking Age, sem kom fyrst út árið 1967. Dr.
Simpson hefur frá árinu 1960 verið virk fræðikona og meðlimur í The Folklore
Society og hefur hún sinnt ýmsum trúnaðarstörfum innan þess. Einnig hefur
hún verið heiðruð fyrir fræðastörf sín með ýmsum hætti.

Viðburðurinn er á vegum Félag þjóðfræðinga á Íslandi og bókabúðar Máls og
menningar.

 



More information about the Gandur mailing list