[Gandur] VIÐ MINNUM Á FYRIRLESTURINN Á MORGUN: Cilia Marianne Úlfsdóttir: Íslenskir framhaldsskólassiðir - uppruni og endursköpun

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Wed Sep 5 21:04:13 GMT 2012


 <http://www.facebook.com/events/356663121084256/> Cilia Marianne
Úlfsdóttir: Íslenskir framhaldsskólassiðir - uppruni og endursköpun

 

Þjóðminjasafni Íslands,  fimmtudaginn 6. september, kl. 12.05.

 

Cilia mun byggja fyrirlesturinn á meistararitgerð sinni "Að fortíð skal
hyggja, ef frumlegt skal byggja": Íslenskir framhaldsskólasiðir - uppruni og
endursköpun, en hún lauk meistaranámi í þjóðfræði í júní s.l.

Ágrip ritgerðarinnar:
Í þessari ritgerð er fjallað um íslenska skólasiði. Skólasiðir, eins og þeir
eru skilgreindir hér, eru hvað það sem nemendur í skólum taka sér fyrir
hendur og tengist ekki beint hinu opinbera skólakerfi, allt frá stórum
hátíðum eins og busavígslu og dimission, í það hvernig þeir hátta sínu
hversdagslífi innan skólasamfélagsin

s, en utan kennslustunda. Meðal annarra verður notast við kenningar van
Gennep um innvígslusiði, kenningar Turner um jaðartíma og samkennd, Huizinga
um leiki í sinni víðustu merkingu, Bakhtin um karnival og loks kenningar
Eric Hobsbawm um tilbúnar hefðir. Sýnt er fram á tengsl þeirra skólasiða sem
tíðkast í dag við eldri hefðir íslensku latínuskólanna. Einnig er fjallað um
tengsl við hefðir og siði í norrænum framhaldsskólum í fortíð og nútíð. Loks
verður gerð grein fyrir tilviksrannsókn (e. case study) sem gerð var á
myndun og þróun skólasiða í Borgarholtsskóla, sem tók til starfa árið 1996.
Helstu niðurstöður eru að slíkir siðir verða til í samvinnu nemenda og
skólayfirvalda. Auk þess eru slíkir siðir mikilvægir við að skapa samheldni
innan skólasamfélagsins, sem svo aftur hefur jákvæð áhrif á veru nemenda
innan skólanna. Hver framhaldsskóli á sér sína sérstöku siði sem hafa mótast
innan hans, en líkt og sýnt verður fram á vísa íslenskir skólasiðir þó
alltaf að einhverju leyti aftur í einhvern kjarna slíkra siða sem hefur
þróast í gegnum aldirnar. Þannig eru slíkir siðir „hefð“ þrátt fyrir að vera
endurskapaðir í hvert sinn sem nýr skóli tekur til starfa og þegar nýir
nemendur byrja í skólunum.

 



More information about the Gandur mailing list