[Gandur] Jólasagnfræði með Árna Björnssyni

Gerður Halldóra Sigurðardóttir ghs4 at hi.is
Fri Nov 30 16:17:05 GMT 2012


Hádegisfyrirlestur FÞÍ í Þjóðminjasafninu fimmtudaginn 6. desember n.k.
verður með Árna Björnssyni, þjóðháttafræðingi og heiðursfélaga í Félagi
þjóðfræðinga á Íslandi.  

 

Árni ætlar að gera grein fyrir skammdegisfagnaði um víða veröld og hvernig
hann breytist í sóldýrkun og seinna eingyðishátíð. Fæðingardagur Krists
hannaður og kristin trú aðlöguð yfirstétt. Fornar hátíðir aðlagast kristni. 
Náttúrleg sérstaða jóla á Íslandi fram eftir öldum. Dagamunur á jólaföstu,
jólamatur gegnum tíðina, jólaskreytingar, jólatré tekur við af jólajötu,
jólagjafir, að gefa í skóinn, skemmtanir barna og fullorðinna. Jólavættir og
þróun þeirra, barnafælur og gleðigjafar. Eðlisbreyting jólasveina.
Menningarleg innræting og markaðsvæðing. Margar venjur og sagnir mun yngri
en flestir halda.

Árna Björnsson þarf varla að kynna fyrir þjóðfræðingum landsins en hann var
forstöðumaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands frá 1969 til 2002.
Árni hefur gefið út fjölda rita um hátíðir og merkisdaga, meðal annars um
Jól á Íslandi sem kom út árið 1963.

		

 



More information about the Gandur mailing list