[Gandur] Húmorsþing 2012 - 17. mars: Dagskrá

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Thu Mar 15 15:19:52 GMT 2012


Húmorsþing 2012

Þjóðfræðistofa og Þjóðfræði við Háskóla Íslands, í samstarfi við
Eddu-öndvegissetur, standa nú fyrir fjórða árlega Húmorsþinginu
laugardaginn 17. mars 2012. Húmorsþingið er bæði vetrarhátíð og málþing um
húmor sem fræðilegt viðfangsefni. Það er nú haldið í fjórða sinn á
Hólmavík á Ströndum. Á málþinginu munu fræðimenn stíga á stokk og varpa
ljósi á nýjustu rannsóknir og miðlun á húmor. Í fyrirlestrum og
umræðuhópum verður rætt um hinar ýmsu birtingarmyndir húmors og
margvíslega iðkun þess í daglegu lífi og fjölmiðlum. Nemendur eru
sérstaklega velkomnir að sitja málþingið og skrifa um það námsritgerðir í
samstarfi við fyrirlesara. Á meðal þátttakenda verða Þorsteinn
Guðmundsson, Ugla Egilsdóttir, Ari Eldjárn, Örn Úlfar
Sævarsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Íris Ellenberger, Ármann Jakobsson,
Sóley Guðmundsdóttir,  Kristinn Schram, Kristín Einarsdóttir og nemendur í
þjóðfræði. Fjöldi fróðlegra erinda og ærslafullt uppistand verður
meðal annars á boðstólnum auk kankvísrar barþrautar (pub quiz) undir
stjórn feðginina Þorbjargar og Matthíasar Lýðssonar. Þá verður
kvikmyndasýning á heimildamyndinni Uppistandsstelpur. Auk þess verður í
fjórða sinn efnt til grínkeppninnar sívinsælu Orðið er laust.

Dagskrá

13:30 (í Pakkhúsinu - Café Riis)Málstofa um húmor: form og iðkun

Kristinn Schram: Fylgt úr hlaði
Bryndís Björgvinsdóttir: Af hverju eru konur með fætur?” Birtingarmynd
kvenna í bröndurum
Sóley Guðmundsdóttir: Að drepast eða drepast úr hlátri
Ari Eldjárn: Af uppistandi
Þorsteinn Guðmundsson: Litli landsdómsbrandarinn


Hlé

15.30  Málstofa um húmor í fjölmiðlum og fræðum

Kristín Einarsdóttir: Umfjöllun um húmor í fjölmiðlum og fræðum
Örn Úlfar Sævarsson: Húmor í auglýsingum
Ármann Jakobsson: Allur raunveruleiki er framleiddur: Um Sigtið með
Frímanni Gunnarssyni
Umræður


17.00
Sýning á heimildamyndinni Uppistandsstelpur eftir Áslaugu Einarsdóttur
fylgt úr hlaði af Írisi Ellenberger

Kl. 20.00 Barþraut (pub quiz) undir stjórn feðginina Þorbjargar og
Matthíasar Lýðssonar

Kl. 21.30  Uppistand og Orðið er laust
Fram koma meðal annars Þorsteinn Guðmundsson og Ugla Egilsdóttir



Vinsamlegast tilkynnið þátttöku, og/eða beinið fyrirspurnum, í netfangið
dir at icef.is

Ferðir og gisting:

Á laugardagsmorgun kl. 9 fer rúta á vegum Húmorsþingsins af stað frá
Þjóðarbókhlöðu og til baka frá Café Riis á sunnudag kl. 13.

Skráning í rútuna fer fram í gegnum síma 6983105 og netfang kriste at hi.is .
Einnig má skoða www.samferda.net og samnýta ferðir.

Frá Reykjavík til Hólmavíkur eru um 230 km á bundnu slitlagi og tekur
ferðin um þrjár klukkustundir. Vegum er haldið opnum fram á kvöld og eru
að jafnaði færir öllum fólksbílum á vetrardekkjum eða negldum.

Ýmsir gistimöguleikar eru í boði og best að hafa beint samband við
ferðaþjónustur:

Steinhúsið er mjög skemmtilegt gistiheimili í fallegu og nýuppgerðu húsi í
gamla þorpinu: www.steinhusid.is

Þar skammt frá er Finna Hótel sem býður upp á bæði uppábúin rúm og
svefnpokapláss: www.finnahotel.is

Í næsta nágrenni við Hólmavík (12 km) er svo öndvegis gistiheimilið
Ferðaþjónustan Kirkjuból www.strandir.is/kirkjubol

Veitingar:
Á Café Riis í hádegi á laugardag verður sjávarréttasúpa salat ofl. og á
laugardagskvöld hlaðborð að hætti hússins. Borðapantanir í síma 4513567 og
8979756.

Í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar er boðið upp á matseðil af grillinu frá kl.
11. til kl. 20.30 og verslun er opin frá kl.  10 – 22.

Annað:
Galdrasýningin á Ströndum er opin alla daga milli 9 og 18.
http://www.galdrasyning.is

Bensínsjálfsali er á Kaupfélagsplaninu.

Aðrar upplýsingar um Strandir og Hólmavík á www.strandabyggd.is og
www.strandir.is

Um Þjóðfræðistofu: www.icef.is
Um námsbraut í þjóðfræði
http://www.hi.is/felagsvisindasvid_deildir/felags_og_mannvisindadeild/nam/thjodfraedi

Um Eddu - öndvegissetur www.edda.hi.is

Annarra upplýsinga má leita í dir at icef.is og s. 8661940.



-- 

Kristinn Schram
forstöðumaður - director
Þjóðfræðistofa  - Icelandic Centre for Ethnology and Folklore - www.icef.is
dir at icef.is
nýdoktor - postdoctoral researcher
Edda - Öndvegissetur  - Edda  Centre of Excellence - www.edda.hi.is
Ísland og ímyndir norðursins - Iceland and Images of the North - www.inor.is
ReykjavíkurAkademían - The Reykjavík Academy - www.akademia.is
kristinn at akademia.is
+3548661940



More information about the Gandur mailing list