[Gandur] Fyrsta málþing um Sigurð Guðmundsson og Kvöldfélagið 1857-1874 (laug. 17. mars)
Terry Gunnell
terry at hi.is
Tue Mar 13 14:42:36 GMT 2012
Laugardaginn 17. mars, frá 10:00 til 15:45, í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, verður haldið fyrsta málþingið af þremur í tengslum við verkefnið:
Menningarsköpun: Fræðilegir áhrifavaldar, uppsprettur innblástrar og langtímaáhrif menningarsköpunar Sigurðar málara og Kvöldfélagsmanna 1857-1874.“
Verkefnið, undir forsjá Terry Gunnell, þjóðfræðiprófessors við HÍ, er þriggja ára þverfagleg rannsókn styrkt af Rannís og er fyrsta starfsárinu nú nýlokið. Á málþinginu verða kynntar hinar ýmsu hliðar verkefnisins og fyrstu niðurstöður, en meginmarkmið fyrsta árins var að kanna tíðaranda tímabilsins, hugmyndafræðilegan bakgrunn Sigurðar málara og samstarfsfólks hans, sem og ástand mála á hinum mörgu sviðum þar sem þau létu að sér kveða. Því mun farið um víðan völl og fjallað um orðræðu, fræðilegar aðferðir, akademískt líf í Kaupmannahöfn, þjóðlega húsagerðarlist , þjóðlegan klæðnað, leikhúsfræði, þjóðsagnasöfnun og að lokum Kvöldfélagið sjálft.
Verkefnið er unnið í samvinnu við Háskóla Íslands, Landsbókasafn/Háskólabókasafn, Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðskjalasafnið og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Málþingið hefst klukkan 10:00 og stendur yfir til 15:45 með stuttum hléum.
Fundarstjóri er Elsa Alfreðsdóttir, þjóðfræðingur.
DAGSKRÁ
10:00-10:15
Inngangur og yfirlit
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
Karl Aspelund, lektor við University of Rhode Island
10:15-11:15
Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands:
Hvad udad tabes, skal indad vindes“: Orðræða um danskt og íslenskt þjóðerni á tímum Sigurðar málara
Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands:
Winckelmann og menningarviðleitni Sigurðar málara
11:15-11:30 Hlé
11:30-12:30
María Kristjánsdóttir, leikhúsfræðingur:
Sigurður málari í Listaakademíunni.
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, dósent í safnafræði við Háskóla Íslands:
Íslenskur arkitektúr, dönsk kúgun og Sigurður Guðmundsson
12:30-13:15 Hádegishlé
13:15-14:15
Karl Aspelund, lektor í hönnun og búningafræðum, University of Rhode Island:
„Skáldskapur þjóðanna“: Siggi séní og sköpun menningarmarka með kvenbúnaði í nýju samfélagi 19. aldar.
Sveinn Einarsson, leikhúsfræðingur og leikstjóri:
Hver var leikhússýn Sigurðar málara?
14:15-14:30 Hlé
14:30-15:30
Terry Gunnell, professor í þjóðfræði við Háskóla Íslands:
Ástandið í þjóðsagnasöfnun þegar Sigurður kemur heim 1858.
Eiríkur Valdimarsson, MA, þjóðfræðingur og stundakennari við Háskóla
Íslands:
„...að lífga anda sinn á þann hátt, er samboðinn sé andlega og siðferðislega menntuðum úngmennum.“
Nokkur augnablik frá fundum Kvöldfélagsins.
15:30-15:45
Lok og umræða um framhald verkefnisins
More information about the Gandur
mailing list