[Gandur] Húmorsþing 2012

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Sat Mar 10 23:54:53 GMT 2012



Þjóðfræðistofa og Þjóðfræði við Háskóla Íslands, í samstarfi við Eddu-
öndvegissetur,  standa nú fyrir fjórða árlega Húmorsþinginu laugardaginn
17. mars 2012. Húmorsþingið er bæði vetrarhátíð og málþing um húmor sem
fræðilegt viðfangsefni. Það er nú haldið í fjórða sinn á Hólmavík á
Ströndum. Á málþinginu munu fræðimenn stíga á stokk og varpa ljósi á
nýjustu rannsóknir og miðlun á húmor. Í fyrirlestrum og umræðuhópum verður
rætt um hinar ýmsu birtingarmyndir húmors og margvíslega iðkun þess í
daglegu lífi og fjölmiðlum. Nemendur eru sérstaklega velkomnir að sitja
málþingið og skrifa um það námsritgerðir í samstarfi við fyrirlesara.

Á meðal þátttakenda verða Þorsteinn Guðmundsson, Ugla Egilsdóttir, Ari
Eldjárn, Örn Úlfar Sævarsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Íris Ellenberger,
Ármann Jakobsson, Eva Þórdís Ebenezersdóttir, Kolbeinn Proppé,
Leikfélag Hólmavíkur, Kristinn Schram, Kristín Einarsdóttir og nemendur
í þjóðfræði. Fjöldi fróðlegra erinda og ærslafullt uppistand verður
meðal annars á boðstólnum auk kankvísrar barþrautar (pub quiz) undir stjórn
feðginina Þorbjargar og Matthíasar Lýðssonar. Þá verður kvikmyndasýning á
heimildamyndinni Uppistandsstelpur og Leikfélag Hólmavíkur flytur
grínsöngleikinn Með allt á hreinu. Auk þess verður í fjórða sinn efnt til
grínkeppninnar sívinsælu Orðið er laust.

Dagskrá nánar auglýst síðar.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku, og/eða beinið fyrirspurnum, hér á síðunni
eða í netfangið dir at icef.is .

Ferðir og gisting:

Á laugardagsmorgun kl. 9 fer rúta á vegum Húmorsþingsins af stað
frá Þjóðarbókhlöðu og til baka frá Café Riis á sunnudag kl. 13.

Skráning í rútuna fer fram í gegnum síma 6983105 og netfang kriste at hi.is .
Einnig má skoða www.samferda.net og samnýta ferðir.

Frá Reykjavík til Hólmavíkur eru um 230 km á bundnu slitlagi og
tekur ferðin um þrjár klukkustundir. Vegum er haldið opnum fram á kvöld og
eru að jafnaði færir öllum fólksbílum á vetrardekkjum eða negldum.

Ýmsir gistimöguleikar eru í boði og best að hafa beint samband
við ferðaþjónustur:

Steinhúsið er mjög skemmtilegt gistiheimili í fallegu og nýuppgerðu húsi í
gamla þorpinu: www.steinhusid.is

Þar skammt frá er Finna Hótel sem býður upp á bæði uppábúin rúm
og svefnpokapláss: www.finnahotel.is

Í næsta nágrenni við Hólmavík (12 km) er svo öndvegis
gistiheimilið Ferðaþjónustan Kirkjuból www.strandir.is/kirkjubol

Aðrar upplýsingar um Strandir og Hólmavík á www.strandabyggd.is og
www.strandir.is

Um Þjóðfræðistofu: www.icef.is
Um námsbraut í þjóðfræði
http://www.hi.is/felagsvisindasvid_deildir/felags_og_mannvisindadeild/nam/thjodfraedi
Um Eddu - öndvegissetur:  www.edda.hi.is


Annarra upplýsinga má leita í dir at icef.is og s. 8661940.


-- 

Kristinn Schram
forstöðumaður
Þjóðfræðistofa
Icelandic Centre for Ethnology and Folklore- www.icef.is
dir at icef.is
nýdoktor - postdoctoral researcher
Edda - Öndvegissetur  - Edda  Centre of Excellence - www.edda.hi.is
Ísland og ímyndir norðursins - Iceland and Images of the North - www.inor.is
ReykjavíkurAkademían - The Reykjavík Academy - www.akademia.is
kristinn at akademia.is
+3548661940


More information about the Gandur mailing list