[Gandur] hádegisfyrirlestur 1.mars

Eva Þórdís Ebenezersdóttir ethe3 at hi.is
Wed Feb 29 09:58:33 GMT 2012


sælir þjóðfræðingar

á morgun fimmtudaginn 1.mars kl. 12-13 mun Egill Viðarsson kynna fyrir
okkur nýlega MA rannsókn sína.
 Að venju þennan 1.fimmtudag í mánuði verður erindið í fyrirlestarar sal
Þjóðminjasafnsins, enginn er aðgangseyririnn og eru allri hjartanlega
velkomnir. Erindið, líkt og önnur hádegsierindi okkar í vetgur, er flutt
í samstarfi við Þjóðminjasafnið.

Egill segir frá MA-ritgerð sinni sem fjallar um deilur sem spunnust í
kring um lagið Vísur Vatnsenda-Rósu við lok síðustu aldar og upphaf
þessarar. Málið hófst þannig að Jón Ásgeirsson tónskáld tók þjóðlagið
Enginn lái öðrum frekt, sem finna má í þjóðlagasafni séra Bjarna
Þorsteinssonar, og vann úr því stærra verk, lagið sem Íslendingar þekkja
sem Vísur Vatnsenda-Rósu. Lagið var gefið út í ýmsum útgáfum, en árið 1995
gerði Jón athugasemd við notkun lagsins í myndinni Tár úr steini þar sem
hann taldi að brotið hefði verið á höfundarrétti sínum. Það olli deilum
sem enduðu með því að STEF lét sérfróða menn á sínum snærum vinna mat á
eignaraðild Jóns að laginu. Niðurstaðan varð sú að hann ætti 10/12 hluta
þess, og því mætti kalla það tónverk eftir Jón Ásgeirsson. Þetta mat varð
mjög umdeilt og fleiri deilur spruttu í kjölfarið, m.a. við Björk
Guðmundsdóttur og Stefán S. Stefánsson.
Í ritgerðinni eru þessar deilur raktar og vandamálin sem þær velta upp
skoðuð með hliðsjón af öðrum rannsóknum á þessu sviði. Frumheimildir
rannsóknarinnar eru tvennskonar. Annars vegar skrifleg gögn í tengslum við
málið – bréf, greinargerðir og blaðaúrklippur – og hins vegar eigindleg
viðtöl sem ég tók við þá sem áttu hlut að máli.
Ritgerðin skiptist í átta kafla. Í inngangskaflanum greini ég frá
viðmælendum mínum, heimildum og aðferðum sem ég notaði. Í öðrum kafla
fjalla ég um sögu höfundarréttar og í þriðja kafla um vandamál sem bundin
eru við hann. Í fjórða kafla fjalla ég um lagið sjálft, uppruna þess og
útbreiðslu, í 5.-8. kafla fjalla ég um sjálfar deilurnar, rek þær frá
upphafi til enda út frá þeim gögnum og viðtölum sem ég hef undir höndum og
í níunda kafla tek ég svo fyrir og reyni að svara helstu spurningum sem
deilan snertir á, dreg ályktanir og velti fyrir mér hvaða lærdóm megi
draga af málinu.

https://www.facebook.com/events/137871896335868/?notif_t=event_invite


með bestu kveðju
              Eva Þórdís






More information about the Gandur mailing list