[Gandur] Þrjúbíó á fimmtudaginn: Þjóðfræði í mynd í Bíó Paradís

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Mon Oct 17 22:58:48 GMT 2011


Skelltu þér í þjóðfræðilegt þrjúbíó á fimmtudag!

Þjóðfræði í mynd í Bíó Paradís á Hverfisgötu

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. 

Níu þættir úr röðinni Þjóðfræði í mynd verða frumsýndir í
Bíó Paradís á fimmtudaginn, 20. október, kl. 15. Hver þáttur um sig
er 10-15 mínútur að lengd og kynnir rannsókn á íslenskum veruleika í
samræðum við alþjóðleg fræði. Rætt er við höfunda ritgerðanna,
aðra fræðimenn og fleiri viðmælendur.  

Bollaspádómar  -  Jólahald  -  Menningartengd ferðaþjónusta    
Húsmæðraskólar  -  Umskiptingasagnir  -  Lífrænn matur    
Hjálækningar óperusöngvara  -  Opin eldhús og matarboð
og Spútník-týpur eru á meðal þess sem er í brennidepli í þessari
þáttaröð sem sækir umfjöllunarefni sitt í BA og MA ritgerðir sem
skrifaðar hafa verið í þjóðfræði á undanförnum árum.  
  
Þáttaröðin er tilraun til að miðla með aðgengilegum hætti út í
samfélagið þeirri þekkingu sem verður til innan veggja háskólans.
Hægt verður að nálgast þættina frítt á netinu (www.vimeo.com:
leitarorð “Þjóðfræði í mynd”) og þeir henta einkar vel sem
innslag í kennslu á framhaldsskólastigi. Þættirnir níu sem nú eru
frumsýndir bætast við fimm þætti sem fóru á netið í fyrra. 

Sjö af níu þáttum sem eru frumsýndir 20. október gerðu
þjóðfræðinemarnir Björk Hólm og Ólafur Ingibergsson en hina tvo
gerði Áslaug Einarsdóttir sem er í meistaranámi í mannfræði. 

Þáttaröðin er afrakstur af verkefni á vegum námsbrautar í
þjóðfræði og safnafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla
Íslands. Verkefnið naut styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og
Vinnumálastofnun. 

Höfundar ritgerðanna sem liggja þessum þáttum til grundvallar eru:
Áki Guðni Karlsson 
Anna Kristín Ólafsdóttir
Berglind Marí Valdemarsdóttir 
Eva Þórdís Ebenezersdóttir
Gunný Ísis Magnúsdóttir
Jón Þór Pétursson
Jóna Kristín Sigurðardóttir
Ólöf Breiðfjörð
Ólöf Dröfn Sigurbjörnsdóttir
og
Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir


Þjóðfræði í mynd á Facebook:
http://www.facebook.com/#!/event.php?eid=260736883962496

Þjóðfræði í mynd á vef HÍ:
http://www.hi.is/vidburdir/3_bio_i_bio_paradis_thjodfraedi_i_mynd 

Þjóðfræði í mynd á vimeo: http://vimeo.com/user5715922/videos/


More information about the Gandur mailing list