[Gandur] Styrkur til rannsókna í Kaupmannahöfn

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Oct 4 11:29:18 GMT 2011


DEN ARNAMAGNÆANSKE KOMMISSION - KØBENHAVNS UNIVERSITET
Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn
Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2012 er laus til  
umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til  
handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.
Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar.  
Styrkurinn er nú um 25.000 danskar krónur á mánuði, auk  
ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að  
jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um  
árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem  
fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði  
eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt  
greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum. Einnig  
skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í  
Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til Den Arnamagnæanske  
Kommission, og senda til institutadministrator Jytte Sander French, jsf at hum.ku.dk 
  Nordisk Forskningsinstitut, Københavns Universitet, Njalsgade 136,  
DK-2300 København S, þannig að þær séu komnar viðtakanda í hendur þann  
1. nóvember 2011, kl. 12 á hádegi.

Det Arnamagnæanske Stipendium
Det Arnamagnæanske Legat, sem hefur það verkefni að veita íslenskum  
ríkisborgurum styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske  
Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í  
Kaupmannahöfn, auglýsir hér með styrk fyrir árið 2012 lausan til  
umsóknar.
Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er  
veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á  
norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi  
vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri  
þeirra.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um  
árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem  
fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði  
eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt  
greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum. Einnig  
skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í  
Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til Den Arnamagnæanske  
Kommission, og senda til institutadministrator Jytte Sander French, jsf at hum.ku.dk 
  Nordisk Forskningsinstitut, Københavns Universitet, Njalsgade 136,  
DK-2300 København S, þannig að þær séu komnar viðtakanda í hendur þann  
1. nóvember 2011, kl. 12 á hádegi.

Umsókn um báða styrkina.
Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum  
þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að sendar séu  
tvær umsóknir.
Umsókn má annað hvort póstsenda eða senda sem viðhengi í tölvupósti  
til jsf at hum.ku.dk


More information about the Gandur mailing list