[Gandur] Dagskrá Húmorsþingsins á laugardaginn

Kristinn H. M. Schram kristinn at akademia.is
Wed Mar 30 08:44:59 GMT 2011


Húmorsþingið er allt í senn vetrarhátíð Þjóðfræðistofu, skemmtun og
málþing um húmor sem fræðilegt viðfangsefni. Það er nú haldið í þriðja
sinn á Hólmavík á Ströndum og eru allir velkomnir.  Dagskrá má nálgast
hér að neðan. Á málþinginu munu fræðimenn stíga á stokk og varpa ljósi
á nýjustu rannsóknir og miðlun á húmor. Á meðal þátttakenda verða Íris
Ellenberger, Eva Þórdís Ebenezersdóttir, Ása Ketilsdóttir, Kristinn
Schram, Saga Garðarsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Heimir Janusarson,
Jón Jónsson og meðlimir Upp, upp mín sál og Uppistöðufélagsins.

Í fræðilegum málstofum verður rætt um hin ýmsu form húmors, svo sem
brandara, uppistand, satíru og íroníu ásamt margvíslegri iðkun þeirra
í daglegu lífi. Fjallað verður um húmor sem valdatæki í baráttu
þjóðfélagshópa og ýmsar birtingarmyndir húmors í bókmenntum,
fjölmiðlum, ljóð- og hverdagslífi. Í sérstakri málstofu verður rætt um
húmor jaðars og miðju; þéttbýlis og dreifbýlis; valdahópa og þeirra
valdaminni (Skráning í netfangið dir at icef.is).

Auk fræðilegrar dagskrár verður meðal annars á boðstólnum kankvís
barþraut (pub quiz), kvikmyndasýning á heimildamyndinni
Uppistandsstelpur og heilmikil uppistandsdagskrá. Auk þess verður í
þriðja sinn efnt til grínkeppninnar sívinsælu Orðið er laust. Um
Þjóðfræðistofu sjá www.icef.is.

Dagskrá Húmorsþingsins

Laugardagur 2. apríl
Hádegishlaðborð á Café Riis,

Kl. 13 - 14
Málstofa: húmor jaðars og miðju; þéttbýlis og dreifbýlis; valdahópa og
þeirra valdaminni Í Skelinni, Hafnarbraut 7. Framsögn hafa m.a.
Kristinn Schram, Íris Ellenberger og Eva Þórdís Ebenezersdóttir
(Skráning í dir at icef.is og í síma 8661940).

Kl. 15 – 19
Hugvekjur á Húmorsþingi á Café Riis

Grín!: Húmorinn leystur úr læðingi
Kristinn Schram

Griðkuríma, druslur og langlokuþulur
Ása Ketilsdóttir kveður

3 fætur og 15 tær!: fötlunarhúmor vs. fatlandi húmor
Eva Þórdís Ebenezersdóttir

Hýr á brá, horfir á: Kynhneigð og viðtökuhópar gríns
Íris Ellenberger

Hlé

Kl. 16:00
Hláturjóga
Ásta Valdimarsdóttir

Í sporum grínistans
Þorsteinn Guðmundsson

Uppistandsstelpur
Heimildamynd eftir Áslaugu Einarsdóttur – Íris Ellenberger fylgir
myndinni úr hlaði

Grín er dauðans alvara: húmor í kirkjugörðum
Heimir Janusarson

Furðufiskar og fljúgandi mörgæsir: Að hlaupa apríl
Jón Jónsson

Kvöldhlaðborð verður á Café Riis – Gæðamatur á góðu verði

Kl. 20:30
Skemmtikvöld á Café Riis (inngangseyrir 1000 kr.)

Pub Quiz – Barþraut
Í umsjón Kristjáns Sigurðssonar og Barböru Guðbjartsdóttur

Uppistand
Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir (úr uppistandshópnum Upp,
upp mín sál) Íris Ellenberger (úr
Uppistöðufélaginu) og fleiri

Grínkeppnin Orðið er laust

Allir eru velkomnir á Húmorsþing á Hólmavík!!! Upplýsingar um
gististaði og fleira slíkt fást á www.icef.is.


More information about the Gandur mailing list