[Gandur] Fwd: Gerðuberg - félags- og skemmtifundur Kvæðamannafélagsins Iðunnar fös. 7. jan kl. 20
Rósa Þorsteinsdóttir
rosat at hi.is
Wed Jan 5 08:53:18 GMT 2011
Begin forwarded message:
> From: Margrét Valdimarsdóttir <margret.valdimarsdottir at reykjavik.is>
> Date: 4. janúar 2011 14:50:22 GMT+00:00
> To: Margrét Valdimarsdóttir <margret.valdimarsdottir at reykjavik.is>
> Subject: Gerðuberg - félags- og skemmtifundur Kvæðamannafélagsins
> Iðunnar fös. 7. jan kl. 20
>
>
> Fréttatilkynning frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
>
> Kvæðamannafélagið Iðunn
> Félagsstarf í ársbyrjun 2011
>
>
>
>
> Kvæðamannafélagið Iðunn byrjar félagsstarf sitt á nýju ári með
> fræðslu- og skemmtifundi föstudaginn 7. janúar kl. 20 í
> Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
>
> Rímnalaganefnd sér um dagskrá fundarins sem að þessu sinni sem
> verður með áramótasniði. Það er Steindór Andersen formaður
> kvæðamannafélagsins sem stýrir fundinum. Þuríður Guðmundsdóttir
> ásamt kvæðakonum flytur nokkrar vísur, Smári Ólason flytur erindi um
> heilagar meyjar, Magnús Ögmundsson les upp úr þekktu verki Halldórs
> Laxness og Spilmenn Ríkínís líta við. Auk þess má vænta annarra
> óvæntra uppákoma. Litla Hagyrðingamótið verður á sínum stað undir
> forystu Helga Zimsen. Sungin verða áramótalög og kveðnar áramótavísur.
>
> Fundurinn er öllum opinn, bæði félagsmönnum og gestum svo og
> áhugafólki um þjóðlegar listgreinar kvæðamanna og hagyrðinga.
>
> Starfsemi Kvæðamannafélagsins Iðunnar:
> Yfir vetrartímann, frá október og fram í maí, eru kvæðalagaæfingar
> haldnar fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar kl. 20. Þar fer fram
> kennsla kveðskapar og miðlað er fróðleik um bragfræði rímna.
> Jafnframt er á æfingum farið yfir þau kvæðalög sem síðan eru kveðin
> í samkveðskap á næsta félagsfundi. Félagsfundir eru haldnir fyrsta
> föstudags kvöld hvers mánaðar kl. 20. Þetta eru opnir skemmtifundir,
> haldnir til fróðleiks og skemmtunar.
>
> Nánari upplýsingar veita:
> Steindór Andersen, formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, sandersen at simnet.is
> , sími: 863-7887 og Rósa Jóhannesdóttir, formaður rímnalaganefndar,
> sími: 697-7111.
>
>
>
> Margrét Valdimarsdóttir
> Verkefnastjóri
> Menningarmiðstöðin Gerðuberg
> Gerðubergi 3-5
> 111 Reykjavík
> www.gerduberg.is
> Sími: 575 7715
> Gsm: 848 0683
>
> __________________________________
> Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur
> Leiddu hugann að umhverfinu áður en þú prentar út þennan tölvupóst.
> Ef nauðsynlega þarf að prenta, prentaðu þá báðar hliðar og í
> svarthvítu.
>
More information about the Gandur
mailing list