[Gandur] laust starf verkefnisstjóra Miðstöðvar munnlegrar sögu

Gisli Sigurdsson gislisi at hi.is
Sat Feb 26 11:17:15 GMT 2011


Verkefnisstjóri - Miðstöð munnlegrar sögu

Stjórn Miðstöðvar munnlegrar sögu auglýsir starf verkefnisstjóra laust  
til umsóknar.
Starfið er fólgið í því að annast daglegan rekstur Miðstöðvarinnar, þ.  
á m. móttöku,
skráningu og varðveislu hljóðritana, fjármál, fræðslustarf og umsjón  
með rannsóknarog
söfnunarverkefnum.

Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi í sagnfræði, þjóðfræði eða  
skyldum
greinum. Æskilegt er að þeir hafi reynslu af öflun og notkun munnlegra  
heimilda.
Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, gott  
vald á
íslensku og ensku og lipurð í mannlegum samskiptum.

Verkefnisstjóri hefur aðstöðu í Landsbókasafni Íslands –  
Háskólabókasafni í
Þjóðarbókhlöðu. Um er að ræða 75% starf og er ráðningartími í eitt ár  
með möguleika á
framlengingu. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknafrestur er til 14. mars 2011.

Umsóknir skulu sendar til starfsmannasviðs Háskóla Íslands,  
Aðalbyggingu við
Suðurgötu, 101 Reykjavík, eða á netfangið; starfsumsoknir at hi.is. Í  
umsókn skal greina
frá menntun og fyrri störfum. Öllum umsóknum verður svarað og  
umsækjendum
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Jónsson prófessor,  
Árnagarði,
Háskóla Íslands, (s. 525 4208, gudmjons at hi.is).

Miðstöð munnlegrar sögu er rannsókna- og fræðslustofnun og safn um  
munnlegar
heimildir sem varða sögu Íslendinga. Hlutverk hennar er að safna,  
varðveita og miðla
munnlegum heimildum og stuðla að rannsóknum í munnlegri sögu. Að  
Miðstöðinni
standa Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Rannsóknastofa í kvenna- og  
kynjafræðum
við Háskóla Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands og  
Landsbókasafn Íslands -
Háskólabókasafn.

Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af  
jafnréttisáætlun Háskólans.
  


More information about the Gandur mailing list