[Gandur] Óskað eftir verkefnisstjóri vegna goðafræðirangoðafræðirannsókna

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Fri Feb 25 14:22:52 GMT 2011


---------------------------- Original Message ----------------------------
Subject: Óskað eftir verkefnisstjóri vegna goðafræðirannsókna
From:    "Skrifstofa RA" <ra at akademia.is>
Date:    Fri, February 25, 2011 2:14 pm
To:      "forum" <forum at akademia.is>
         "gammabrekka" <gammabrekka at hi.is>
         "gandur" <gandur at hi.is>
--------------------------------------------------------------------------

Verkefnisstjóri vegna goðafræðirannsókna

*
*

*Snorrastofa í Reykholti auglýsir eftir verkefnisstjóra í tímabundið starf.*


Stofnunin hefur í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna og Háskóla Íslands
hrint af stað mjög stóru rannsóknarverkefni um norræna goðafræði. Margir
helstu fræðimenn í greininni, íslenskir og erlendir, koma að verkefninu sem
felst í því að gefa út nokkurra binda ítarlegt yfirlitsrit um norræna
goðafræði. Það mun taka amk. 6 ár.

Stjórn verkefnisins leitar eftir verkefnisstjóra í a.m.k. fullt starf í þrjá
mánuði eða hálft starf í sex mánuði. Starfið felst einkum í
heildarskipulagningu verkefnisins og fjáröflun, t.a.m. ritun umsókna. Vonast
er til að takist að afla fjár til verkefnisstjóra í hálfu starfi til
frambúðar.

Verkefnisstjóri þarf að hafa lokið amk. meistaraprófi á fræðasviði nærri
goðafræði, hafa góða tungumálakunnáttu, hafa staðgóða þekkingu og mikinn
áhuga á norrænni trú og bókmenntum, hafa reynslu af styrkjaumsóknum, hafa
verulegt frumkvæði og vera sjálfstæður í vinnubrögðum.


Nánari upplýsingar veitir Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu
(sími 89312492 og netfangið bergur at snorrastofa,). Umsóknir sendist
Snorrastofu, Reykholti, 320 Reykholti fyrir 11. mars nk. Umsóknir má einnig
senda með tölvupósti.

-- 


Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is


More information about the Gandur mailing list