[Gandur] Fyrirlestur hjá Nafnfræðifélaginu

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Feb 22 13:13:41 GMT 2011


Nafnfræðifélagið efnir til fræðslufundar  laugardaginn 26. febrúar  
2011, kl. 13.15,  í stofu 131 í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.

Páll Sigurðsson prófessor flytur erindi sem hann nefnir

Aftökuörnefni

Í erindi sínu mun Páll fjalla um örnefni, sem með einum eða öðrum  
hætti vísa til eða kunna að benda til refsiframkvæmdar fyrri tíma,  
þegar líflátshegningar voru í íslenskum lögum og meðan dauðadómum var  
framfylgt víða um land. „Aftökuörnefni“ má kalla þau örnefni, er vísa  
til lífláts dæmdra sakamanna. Sem dæmi má nefna örnefni eins og  
Drekkingarhylur, Brennugjá, Höggstokkseyri og Gálgaklettar, sem öll  
eru á alþingisstaðnum gamla á Þingvöllum. Vísa þau öll með vissu til  
refsiframkvæmdar þar. Víða um land gefur einnig að finna  
aftökuörnefni, m.a. á eða í grennd við gamla þingstaði. Eru ýmsar  
sagnir tengdar sumum þeirra, þó misjafnlega áreiðanlegar. Víða eru  
t.d. Gálgaklettar og Gálgagil, sem aftökusagnir tengjast, en þó er  
stundum alls óvíst eða jafnvel mjög ólíklegt að þar hafi aftökur farið  
fram í reynd.

Erindið tekur um 30 mínútur.

Stjórnin


More information about the Gandur mailing list