[Gandur] Fwd: Syngjum og kveðum um fjölskylduna og börnin í kaffihúsi Gerðubergs, sunnudaginn 13 febrúar kl. 14-16
Rósa
rosat at hi.is
Thu Feb 10 08:47:44 GMT 2011
Begin forwarded message:
> From: Chris Foster <funi.reykjavik at gmail.com>
> Date: February 9, 2011 9:35:56 PM GMT
> To: omag at ismennt.is
> Subject: Syngjum og kveðum um fjölskylduna og börnin í kaffihúsi Gerðubergs, sunnudaginn 13 febrúar kl. 14-16
>
> Syngjum og kveðum
> í kaffihúsi Gerðubergs
>
>
> Sunnudaginn 13 febrúar kl. 14-16 verður á dagskrá söngstund í Gerðubergi.
>
> Syngjum og kveðum um fjölskylduna og börnin er yfirskriftin að þessu sinni.
>
> Gestum gefst kostur á að eiga saman góða stund, syngja og hlýða á söngva um mömmu, pabba, ömmu, afa, systir, bróðir og börnin.
>
> Lögin eru blanda af íslenskum alþýðulögum og erlendum þjóðlögum.
>
>
> Þeir sem koma fram að þessu sinni eru m.a. Steinunn Lárusdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Sigríður Ása Sigurðardóttir og Gautur Garðar Gunnlaugsson,
>
> Hallgrímur Pétursson og Sigurður Einarsson,
>
> Kristína Petrosiute frá Litháen og Karitur Íslands
>
> Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu,
>
> Dhanak Naz frá Pakistan
>
> og sagnamaðurinn Pétur Eggertz
>
> Gestir fá sönghefti með söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.
>
> Upplagt að taka börnin og barnabörnin með.
>
>
>
> Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar.
>
> Ókeypis aðgangur
>
>
> Næsta dagskrá verður:
> 13. mars Syngjum og kveðum um atvinnu fólks fyrr og nú.
>
>
>
>
>
>
>
> --
> Chris Foster
> Bergþórugata 15a
> 101 Reykjavík
> Iceland
> tel 00354 659 1947
>
More information about the Gandur
mailing list