[Gandur] Munið þjóðfræði á Þjóðarspegli á mor gun!

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Thu Oct 28 10:30:27 GMT 2010


Ágætu þjóðfræðingar og vinir þjóðfræðinnar á Gandi,

Á morgun milli 11-17 í stofu 201 í Odda verður þjóðfræðin með þrjár
málstofur á Þjóðarspeglinum, árlegri ráðstefnu félagsvísindanna í
Háskólanum. Þar flytja tólf þjóðfræðingar jafn marga fyrirlestra og kynna
nýjustu rannsóknirnar í faginu.

Dagskrá þjóðfræðinnar á Þjóðarspeglinum verður sem hér segir:

11.00-12.50: Þjóðfræði miðalda (Oddi 201)
--Gísli Sigurðsson: Njáls saga og hefðin sem áheyrendur þekktu
--Aðalheiður Guðmundsdóttir: Af betri konum og bóndadætrum: Um stéttbundna
misnotkun kvenna í fornaldarsögum og öðrum afþreyingarbókmenntum miðalda
--Ingunn Ásdísardóttir: Bors synir “bjöðum ypptu” – or did they?
--Valdimar Tr. Hafstein: Höfundur ókunnur: Höfundaréttur og höfundarleysi

13.00-14.50: Þjóðfræði síðari alda (Oddi 201)
--Símon Jón Jóhannsson: Skolli, skolli, skíttu í hverju horni: Um
skollaleik í sögulegu ljósi
--Júlíana Þóra Magnúsdóttir: Þjóðsagnasöfnun og kyngervi: Um
þjóðsagnasöfnun Torfhildar Þorsteinsdóttur Hólm og mótun íslenskrar
þjóðsagna(söfnunar)hefðar
--Rósa Þorsteinsdóttir: Söguhetjan, góða stjúpan og hjálparhellurnar:
Íslensk ævintýri af gerðinni 556*
--Eiríkur Valdimarsson: Gáð til veðurs: Rannsókn á veðurgleggni Íslendinga
og hæfileikanum að lesa í náttúruna

15.00-16.50: Þjóðfræði samtímans (Oddi 201)
--Kristín Einarsdóttir: Áramótaskaupið og aðrar óspektir um áramót --Jón
Þór Pétursson: Lífrænt fólk
--Bryndís Björgvinsdóttir og Valdimar Tr. Hafstein: „Að fæla fólk frá...“:
Eftirlitsmyndavélar í miðborg Reykjavíkur
--Kristinn Schram: Obscurity as heritage: The Þorrablót revisited

Ég hvet alla þjóðfræðinga, þjóðfræðinema og vini þjóðfræðinnar til að mæta
á þessa árlegu uppskeruhátíð og kynna sér þannig á einum degi það helsta
sem er að gerast í faginu hér á land, fá innsýn í allar nýjustu
rannsóknirnar og taka þátt í umræðum.

Bestu kveðjur,
Valdimar


More information about the Gandur mailing list