[Gandur] Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Mon May 10 16:11:26 GMT 2010


Sögustaðir
Í fótspor W.G. Collingwoods
Fimmtudaginn 13. maí verður sýningin Sögustaðir – Í fótspor W.G. 
Collingwoods opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Á sýningunni má sjá 
ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson, sem unnin eru með hliðsjón af 
vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og 
fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem 
koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 
1897. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2010.


Síðustu þrjú ár hefur Einar Falur notið leiðsagnar Collingwoods á ferð 
sinni milli íslenskra sögustaða. Hann hefur farið milli staða þar sem 
breski listamaðurinn vann og stuðst við myndverk hans og skrif. 
W.G. Collingwood kom til landsins til að mála myndir af stöðum sem koma 
fyrir í Íslendingasögunum og um leið skapaði hann merkar heimildir um 
íslenskan samtíma sinn. Í ljósmyndum Einars Fals verður til samtal þriggja 
tíma; samtíma áhorfandans í dag, samtíma Collingwoods árið 1897 og 
sögualdarinnar, sem Bretinn hyllti í myndverkum sínum.
Á sýningunni í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands má sjá úrval ljósmynda 
Einars Fals og að auki hluta þeirra rúmlega 300 verka sem Collingwood 
málaði hér á landi, en ríflega helmingur myndanna frá ferð hans eru 
varðveittar í Þjóðminjasafninu. 
Í samnefndri bók, sem Þjóðminjasafn Íslands og Crymogea gefa út, birtast 
enn fleiri myndir úr verkefninu, auk ítarlegs texta ljósmyndarans um 
verkefnið, ljósmyndun, málaralist, ferðalagið og tímann.
Með bestu kveðju, 
Helga Vollertsen 
Kynningarstjóri 
Þjóðminjasafni Íslands 
v/Suðurgötu 
101 Reykjavík 
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100510/76823406/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 37517 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100510/76823406/attachment-0002.gif 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 12353 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100510/76823406/attachment-0003.gif 


More information about the Gandur mailing list