Sögustaðir

Í fótspor W.G. Collingwoods

Fimmtudaginn 13. maí verður sýningin
Sögustaðir – Í fótspor W.G. Collingwoods opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns
Íslands. Á sýningunni má sjá ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson,
sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum
sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood
málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna
ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík
2010.

Síðustu þrjú ár hefur Einar Falur notið
leiðsagnar Collingwoods á ferð sinni milli íslenskra sögustaða. Hann hefur
farið milli staða þar sem breski listamaðurinn vann og stuðst við myndverk
hans og skrif.

W.G. Collingwood kom til landsins til að
mála myndir af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum og um leið skapaði
hann merkar heimildir um íslenskan samtíma sinn. Í ljósmyndum Einars Fals
verður til samtal þriggja tíma; samtíma áhorfandans í dag, samtíma Collingwoods
árið 1897 og sögualdarinnar, sem Bretinn hyllti í myndverkum sínum.

Á sýningunni í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands
má sjá úrval ljósmynda Einars Fals og að auki hluta þeirra rúmlega 300
verka sem Collingwood málaði hér á landi, en ríflega helmingur myndanna
frá ferð hans eru varðveittar í Þjóðminjasafninu.

Í samnefndri bók, sem Þjóðminjasafn Íslands
og Crymogea gefa út, birtast enn fleiri myndir úr verkefninu, auk ítarlegs
texta ljósmyndarans um verkefnið, ljósmyndun, málaralist, ferðalagið og
tímann.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039