[Gandur] Fyrirlestur: Kryddar sig sjálft

Félag Þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Wed Mar 24 12:37:31 GMT 2010


„Kryddar sig sjálft“
Þriðjudag 30. mars frá kl. 16-17, stofu 201 í Árnagarði.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Jón Þór Pétursson doktorsnemi í þjóðfræði flytur fyrirlestur á vegum Félags
þjóðfræðinga á Íslandi og Háskóla Íslands um matarmenningu samtímans sem
byggir á meistararitgerð hans.

Merking býr ekki í matnum óháð þeim sem leggur sér hann til munns og um leið
verður það að matast að menningarlegri iðju. Þetta má greina í þeirri
viðleitni við að skapa persónuleg tengsl í matvælaframleiðslu samtímans
(myndin af beljunni utan á ostinum), í samspili hins hnattvædda og hins
staðbundna með tilliti til matar og hvernig viðmælendur fóta sig innan
mótsagnakenndra hugmynda samtímans, hugmynda um hollustu, náttúru, hreinlæti
og hefðir. Rannsóknarspurningin sem Jón reyndi að svara í ritgerðinni var:
Hvernig skapa einstaklingar sína matarmenningu í gegnum sýn sína á
„náttúru“, „hefð“ og „stað“?

Í hversdagslegri iðkun menningar verður til samhengi sem tekur mið af
félagslegum, sögulegum, efnahagslegum og pólitískum hugmyndum einstaklinga
og hópa. Matur er þar ekki undanskilinn og í matarvenjum birtast þannig
sjónarmið sem vísa handan hins líffræðilega kaloríugildis.


-- 
___________________
Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar
thjodfraedingar at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100324/4ec79156/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list