[Gandur] Fwd: LANDSBYGGÐARÁÐSTEFNA Kallað eftir erindum.

Óli Gneisti Sóleyjarson oligneisti at gmail.com
Sat Feb 13 23:14:50 GMT 2010


Kannski er ég að senda þetta aftur en það er betra að þetta komi
tvisvar en ekki.

kv.
Óli Gneisti Sóleyjarson


---------- Forwarded message ----------
From: Íris Ellenberger <irisel at hi.is>
Date: 2010/1/26
Subject: LANDSBYGGÐARÁÐSTEFNA Kallað eftir erindum.
To: Gammabrekka <gammabrekka at hi.is>
Cc: Óli Gneisti Sóleyjarson <oli at truflun.net>, Júlíana Magnúsdóttir
<jthm2 at hi.is>, Soffía Auður Birgisdóttir <soffiab at hi.is>


Kæru félagar á Gammabrekku
Sagnfræðingafélag Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi áætla að
halda næstu landsbyggðaráðstefnu sína á Suðausturlandi; í Suðursveit
og á Höfn
Hornafirði. Ráðstefnan verður haldin í samvinnu við Fræðasetur Háskóla
Íslands á Höfn og ReykjavíkurAkademíuna, helgina 21.-23. maí.

Fyrirsögn ráðstefnunnar er að þessu sinni UNDIR HORNAFJARÐARMÁNA og
áhersla verður lögð á samspil mannlífs, menningar og náttúru á
Suðausturlandi. Óskað er eftir erindum á sviði hug- og félagsvísinda
sem falla að þessu efni. Tillögur að erindum sendist til Írisar
Ellenberger, formanns Sagnfræðingafélagsins, netfang irisel at hi.is og
Soffíu Auðar Birgisdóttur, sérfræðings á Háskólasetrinu á Höfn,
netfang: soffiab at hi.is, fyrir 15. febrúar. Nánari upplýsingar má
einnig fá í síma: 8614832 (Íris) og 4708042 eða 8482003 (Soffía
Auður).

Markmiðið með landsbyggðaráðstefnunum er m.a. að hlúa að staðbundnum
rannsóknum og fræðastörfum á landsbyggðinni og gefa fólki kost á að
miðla
þeim rannsóknum sem unnar eru á sviði hug- og félagsvísinda á
landsvísu. Ávallt er leitast við að hafa ráðstefnurnar þverfaglegar og
fá fyrirlesara
af ólíkum fræðasviðum auk heimamanna á hverju svæði fyrir sig.
Ráðstefnuhaldinu er einnig ætlað að vekja áhuga fræðimanna af
höfuðborgarsvæðinu á einstökum svæðum landsbyggðarinnar og taka fyrir
efni sem eru knýjandi í fræðilegri umræðu. Þessar ráðstefnur hafa
verið mjög fjölsóttar af fræðimönnum sem og stúdentum.
Með bestu kveðju
Íris Ellenberger


More information about the Gandur mailing list