[Gandur] Slæðingur-efni í blaðið

Margrét Sigvaldadóttir mas38 at hi.is
Sat Dec 25 20:24:34 GMT 2010


Dásamlegu þjóðfræðinemar, þjóðfræðingar, þjóðfræðikennarar og aðrir
áhangendur þjóðfræði.
Um leið og við viljum óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og gæfu og
gáfum á nýju ári, viljum við minna á að skilafresturinn fyrir skil á efni
í Slæðing, hefur verið framlengdur. En hann er núna til 5.janúar og munum
við þá hefjast handa við að setja saman skemmtilegt og fræðandi blað.
Slæðingur hefur ekki komið út í nokkur ár og því vitum við að þið lumið
nokkuð mörg á greinum/hugleiðingum/brandörum/myndum í blaðið. Öll höfum
við eitthvað að segja, ekki satt?!?!?!
Jóla-og áramótakveðja frá ritstjórn Slæðings.

Vala (vao4 at hi.is)
Stína (kakakamban at gmail.com)
Margrét (mas38 at hi.is)




More information about the Gandur mailing list