[Gandur] Barnaleiðsögn sunnudaginn 2. maí

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Apr 30 09:46:32 GMT 2010


Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 2. maí kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í 
Þjóðminjasafni Íslands. 
Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára.

Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin 
gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans.

Ýmsir spennandi munir á safninu verða skoðaðir, meðal annars beinagrindur, 
1000 ára gömul sverð og dularfullur álfapottur. 

Leiðsögnin er um 45 mínútur að lengd.

Nánari upplýsingar veitir Helga Einarsdóttir í síma 530-2200 eða á 
netfangið kennsla at thjodminjasafn.is


Verið innilega velkomin !
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100430/2aecdbb7/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 59570 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100430/2aecdbb7/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list