[Gandur] Þjóðfræðingar fagna sumarkomu

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Mon Apr 19 12:32:18 GMT 2010


Sæl verið þið öll

Að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 22. Apríl næstkomandi, bjóða
Þjóðfræðistofa og Félag Þjóðfræðinga til  kvöldvöku í Sögufélagshúsinu við
Fishersund.

    *Fyrri fyrirlestur kvöldsins flytur Tiber Falzett, doktorsnemi við
þjóðfræðideild Edinborgarháskóla.  Fyrirlestur hans fjallar um ýmsar gerðir
Bjarnasöngva (Òran a’ Mhathain) sem varðveist hafa í geilískumælandi Nova
Scotia og öðrum svæðum Norður Ameríku*.    Tiber mun meðal annars skoða
stílbrögð innan tegundarinnar svo sem þá manngervingu (anthropomorphism)  sem
algeng er í söngvum þar sem menn og dýr kveðast á.  Þá skoðar hann tengsl
söngvanna við háðska rottusöngva innan skosk-geilískarar kvæðahefðar. Tekin
verða dæmi af því þegar landnemar og birnir mætast í munnlegri hefð  og
kvæðum sem gengið hafa mann fram af manni.  Gerð verður tilraun til
skilja  hlutverk
bjarnarins í geilískri heimsmynd fyrir og eftir brottflutning Skota með
vísun í sam- og feluheiti yfir birni. Með rannsókn þjóðfræðaefnis sem
varðveist hefur má einnig finna hliðstæður meðal norðlægra þjóða þar sem
björnin leikur stórt hlutverk í trúarathöfnum. Þannig má  leggja grunn að
frekari skilningi á hinu flókna vistfræðilega sambandi manns og bjarnar.


[image: https://mail.google.com/a/icef.is/images/cleardot.gif]

*Seinni fyrirlestur kvöldsins flytur Dr. Giulia De Gasperi frá
Edinborgarháskóla en hún mun segja frá vettvangsrannsókn sinni meðal íbúa
ítalsk-kanadíska samfélagsins í Domion, sem er smáþorp á Bretónhöfðaeyju í
Kanada*.  Þetta samfélag byggðist upp eftir fyrri heimstyrjöld og
samanstendur að mestum hluta af innflytjendum sem fluttust frá Trevigian
héraðinu á Ítalíu. Fyrirlesturinn byggir á munnlegum frásögnum sem lýsa vel
þeim matarhefðum sem fluttust frá “gamla landinu” í bland við nýja
matarhætti sem nú eru taldir hefðbundnir og jafnvel lýsandi fyrir ítalska
íbúa Domion.  Einnig verður rætt um ýmis viðhorf til eldamennsku og það sem
talið er að “góður kokkur“ þurfi að hafa til að bera í þessu tiltekna
samfélagi.



Dagskráin hefst kl: 20.00 í Sögufélagshúsinu, Fishersundi og er öllum opinn
og án endurgjalds.



Frekari upplýsingar í síma 8661940 og heimasíðu Þjóðfræðistofu www.icef.is

___________________________________________________________________________________________________________________________________<http://www.icef.is/>


<http://www.icef.is/>


Fyrir hönd félags þjóðfræðinga á Íslandi

Þórunn Kjartansdóttir
<http://www.icef.is/>




-- 
___________________
Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar
thjodfraedingar at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100419/36a7038c/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list