[Gandur] Iðunn áttræð! Glæsileg afmælisdagskrá Kvæðamannafélagsins Iðunnar í Gerðubergi

Guðrún Dís Jónatansdóttir gudrun.dis.jonatansdottir at reykjavik.is
Fri Sep 11 16:01:11 GMT 2009


Sæl verið þið

Bið ykkur vinsamlegast að senda þessa fréttatilkynningu á ykkar póstlista.

Bestu þakkir
Guðrún Dís
Fréttatilkynning frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

Iðunn áttræð!
Glæsileg afmælishátíð Kvæðamannafélagsins Iðunnar

Afhending handrita í Stofnun Árna Magnússonar 15. september 2009
-------------------------
Tveggja daga afmælishátíð í Gerðubergi 19. og 20. september 2009



Kvæðamannafélagið Iðunn heldur um þessar mundir upp á 80 ára afmæli sitt. 
Afmælisdaginn 15. september kl. 16.00 afhendir félagið Stofnun Árna 
Magnússonar handrit sín til varðveislu en sjálf afmælishátíðin verður 
haldin helgina 19. og 20. september í Gerðubergi. Dagskráin er með 
glæsilegasta móti og stendur yfir frá kl. 14.00-17.00 báða dagana. Haldnir 
verða fimm tónleikar með rímnakveðskap og hljóðfæraslætti, kvæðafólk og 
skáld fjalla um kveðskaparhefðina, sýning verður á munum úr eigu Iðunnar í 
hliðarsal og tekið á móti upptökum af rímnasöng sem fólk lumar á í 
heimahúsum. Tónleikar eru á heila tímanum, umræður á hálfa tímanum og þess 
á milli troða kvæðamenn upp á kaffistofu. Gestir geta komið og farið á 
milli atriða. Aðgangur er ókeypis.

Dagskráin á laugardeginum 19. september hefst með Hrafnagaldri. Flytjendur 
eru Steindór Andersen, félagar í Sigur Rós, Páll á Húsafelli og Hilmar Örn 
Hilmarsson. Steindór og Sigur Rósar-félagar ræða síðan við áheyrendur um 
samstarf sitt á erlendri grundu. Kvæðamenn úr Iðunni kveða úr Disneyrímum 
eftir Þórarin Eldjárn og að því búnu mun skáldið segja frá glímu sinni við 
bragarhætti og kenningar meðan á smíðinni stóð. Þá kveður Þórarinn 
Hjartarson frá Tjörn í Svarfaðardal vísur eftir Sigurð Breiðfjörð og 
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur segir frá gagnrýni Jónasar 
Hallgrímssonar á rímnakveðskapnum, ekki síst á rímum Sigurðar Breiðfjörð. 
Dagskrá laugardagsins lýkur með veglegri afmælisveislu undir lúðrablæstri.

Sunnudaginn 20. september segir Ása Ketilsdóttir frá uppvaxtarárum sínum á 
Ytra-Fjalli í Aðaldal. Hún kann fjölmargar vísur og ógrynni af barnagælum 
og þulum sem hún kveður fyrir áheyrendur. Að því búnu stíga hagyrðingar úr 
Iðunni á stokk og takast á um dægurmál og dýpstu rök tilverunnar á 
spaugsaman hátt. Að lokum verða haldnir tónleikar þar sem fram koma 
afburða tónlistarmenn á sviði þjóðlagatónlistar: Spilmenn Ríkínís og Voces 
Thules.

Aðgangur er eins og áður segir ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir. 


Nánari upplýsingar:

Sjá heimasíðu Gerðubergs: www.gerduberg.is

Framkvæmdastjóri hátíðarinnar er Gunnsteinn Ólafsson 6926030 
gol at ismennt.is 

Formaður Iðunnar er Steindór Andersen, s. 863 7887, netfang: 
sandersen at simnet.is eða rimukallinn at gmail.com



Með kveðju
Guðrún Dís

Guðrún Dís Jónatansdóttir
Verkefnastjóri / Project Manager
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík
Sími / Tel. +354 575 7700 / + 354 575 7706
GSM / Mobil: +354 822 2651
Netfang / e-mail: gudrun.dis.jonatansdottir at gerduberg.is
Veffang / Webpage: www.gerduberg.is
 

__________________________________
Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur
Leiddu hugann að umhverfinu áður en þú prentar út þennan tölvupóst. Ef 
nauðsynlega þarf að prenta, prentaðu þá báðar hliðar og í svarthvítu.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090911/5fd54557/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 67599 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090911/5fd54557/attachment-0001.gif 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: I?unn 80 ?ra.pdf
Type: application/octet-stream
Size: 282082 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090911/5fd54557/attachment-0001.obj 


More information about the Gandur mailing list