[Gandur] USA MY WAY – Hvar er fólkið?

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Nov 11 11:05:51 GMT 2009


USA MY WAY – Hvar er fólkið?

Fimmtudaginn 12. nóvember mun Kristján Logason ljósmyndari flytja erindið 
“USA My Way – Hvar er fólkið?” í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafni 
Íslands. Fyrirlesturinn er sá fyrsti í nýrri röð hádegisfyrirlestra í 
samvinnu Ljósmyndarafélags Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Hann hefst 
klukkan 12:10 og stendur í u.þ.b. 45 mín. Aðgangur er ókeypis og allir 
velkomnir.


”USA My Way” byggir á ljósmyndum sem Kristján tók af því sem varð á vegi 
hans á tveggja ára löngu ferðalagi um Norður- og Miðameríku sem hann lagði 
upp í árið 2006. Í ferðinni leitaðist hann við að endurnýja og 
endurskilgreina sjálfan sig sem ljósmyndara og var markmiðið að ljósmynda 
fólk í sínu náttúrulega umhverfi. ”USA My Way – hvar er fólkið?” er því í 
senn leit ljósmyndarans að viðfangsefninu, fólkinu sem átti að mynda, og 
samtímis leit hans að sjálfum sér.

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091111/e78089c7/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 34473 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091111/e78089c7/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list