[Gandur] AF STAÐ á Reykjanesið 4 ferð Selvogsgata 18 km

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue May 26 09:06:22 GMT 2009


> AF STAÐ á Reykjanesið 4 ferð Selvogsgata 18 km
>
> Kæri/kæra adalh at hi.is
>
>
>
> Þjóðleiðarganga Selvogsgata-gömul þjóðleið 18 km
> laugardaginn 30. maí kl. 11.
>
> Gangan hefst við slysavarnaskýli á Bláfjallaleið, neðan  
> Grindarskarða. (Akið frá Hafnarfirði, Krýsuvíkurleið þangað til að  
> komið er að stóru skilti sem á stendur Bláfjöll þar er beygt til  
> vinstri og ekið í um 10 mín. að slysavarnaskýli.)
> Selvogsgatan er gömul þjóðleið milli Hafnarfjarðar og Selvogs.  
> Gengið verður um Grindarskörð, Hvalsskarð og Strandardal.  
> Hlíðargatan síðan gengin  að Hlíðarvatni í Selvogi. Leiðin er  um 18  
> km og tekur um 6 - 7 tíma. Þessi leið var fjölfarin áður en bílvegir  
> komu til sögunnar um miðja síðustu öld. Gott er að vera með nesti og  
> í góðum skóm og hlífðarfatnaði . Allir eru á eigin ábyrgð.  
> Þátttökugjald er kr. 2500.
>
> Gangan er fjórði hluti af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum  
> um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar eru  
> með leiðsögn sumarið ´09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem  
> göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Eftir 6 - 12 ferðir er  
> hægt að vera með í potti sem dregið verður úr í síðustu ferð.  
> Einhverjir þrír fá góð gönguverðlaun. Göngufólk er beðið um að muna  
> eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Sjá nánar um ferðir  
> áwww.sjfmenningarmidlun.is  og eins ef um breytingar er að ræða.
>
>
> Umsjónarmaður gönguverkefnis
> AF STAÐ á Reykjanesið
> Sigrún Jónsd. Franklín
> sjf at internet.is/6918828
>
>
>
> Kveðja
>
> sjf meningarmiðlun
>
>
>





-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/related


More information about the Gandur mailing list