[Gandur] Gróttuferð: Draugasögusprell á föstudeginum 13.

Félag Þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Sun Mar 8 20:54:57 GMT 2009


Þjóðfræðingum er nú boðið í Gróttuferð. Farið verður út í Gróttu um klukkan
23:30 á föstudeginum 13. mars og setið við draugasögusprell langt fram á
nótt. Þeir sem ætla að gista eru beðnir um að skrá sig:
thjodfraedingar at gmail.com.

Við munum byrja kvöldið á Kaffi Centrum kl. 20 og förum út í eynna upp úr
kl. 22:30. Hægt verður að koma í land aftur til klukkan 3:30-4:30 um nóttina
eða upp úr klukkan 11:30-12:30 á laugardagsmorgninum. Fólki er ráðlagt að
taka með sér svefnpoka og gista, því ætlunin er að segja draugasögur langt
fram á nótt. Allir eru hvattir til þess að dusta rykið af eigin sögum og
taka þátt í sagnaskemmtuninni. Um morguninn verður vitinn skoðaður í þaula.
Þá er fólk einnig hvatt til að taka með sér morgunmat, næturnasl og
drykkjarveigar. Ókeypis fyrir meðlimi FÞÍ, aðrir greiða 1000 kr. Þeir sem
ætla að gista eru vinsamlegast beðnir um að láta vita með því að senda
tölvupóst: thjodfraedingar at gmail.com.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090308/f3e25e30/attachment.html


More information about the Gandur mailing list