[Gandur] Menningar- og sögutengd gönguhátíð um verslunarmannahelgina

Sigrún Jónsdóttir sigruj at hi.is
Tue Jul 21 10:31:07 GMT 2009


AF STAÐ á Reykjanesið
Menningar- og sögutengd gönguhátíð í Grindavík
um verslunarmannahelgina.

Föstudagur 31. júlí:
Mæting kl. 20:00 við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið verður með
leiðsögn um Hópshverfi, gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma. Endað
við tjaldsvæðið með söng. Gangan er í boði Grindavíkurbæjar og
Saltfisksetursins..

Laugardagur 1. ágúst:
Mæting kl. 11:00 við Ísólfsskála, sem er í um 6 km austur af Grindavík, á
Krýsuvíkurleið.  Gengið verður með leiðsögn um Selatanga þar sem sjá má
minjar um verbúðir og sjósókn fyrri tíða. Síðan verður gengið eftir
rekastíg um Katlahraunið sem er líkt og „Dimmuborgir“ með sínum
kyngimögnuðu hraunmyndunum. Gangan endar við Ísólfsskála og tekur um 3-4
tíma. Gengið verður í sandi og hrauni. Gott er að hafa með sér nesti og
vera í góðum skóm. Skálakaffi verður opið. Þátttökugjald í ferð er kr.
1.000.

Sunnudagur 2. ágúst:
Mæting kl. 11:00 við Saltfisksetrið. Gengið verður með leiðsögn um gamlar
þjóðleiðir. Haldið verður eftir gömlu götunni austur í hverfi og síðan
eftir anga Skógfellaleiðar upp á aðalleiðina (gamla Vogaveginn). Svæðið
býður upp á  stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gangan tekur um 3-4
tíma. Gengið verður í hrauni.  Gott er að hafa með sér nesti og vera í
góðum skóm. Í lok göngu verður boðið upp á heilgrillað lamb á teini í
Salthúsinu í Grindavík, verð kr. 2.500. Þátttökugjald í göngu er kr. 1000.

Mánudagur 3. ágúst:
Mæting kl. 11:00 við bílastæði Bláa lónsins. Ekið verður í Eldvörp á
einkabílum.Gengið verður með leiðsögn um Brauðstíg að „Tyrkjabyrgjunum“.
Byrgin fundust seint á 19.öld vandlega falin í jaðri Sundvörðuhrauns.
Síðan verður gengið um Árnastíg gömlu þjóðleiðina og henni fylgt í
Eldvörp. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á  stórbrotna náttúru,
jarðfræði og sögu. Gengið verður í hrauni. Gott er að hafa með sér nesti
og vera í góðum skóm. Bláa Lónið býður upp á tvo fyrir einn í lónið í lok
göngu. Þátttökugjald í göngu er kr. 1.000

Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í allar ferðir. Allir eru á eigin
ábyrgð í ferðum.

Gönguhátíðin er liður í viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur 2009.

Styrktar- og umsjónaraðilar: Grindavíkurbær, Saltfisksetrið, FERLIR og sjf
menningarmiðlun.

Upplýsingar um tjaldsvæði Grindavíkur, gistingu, veitingar og aðra
þjónustu eru á www.grindavik.is eða í Saltfisksetrinu s. 4201190.

Göngufólk fær stimpil á þátttökuseðil eftir hverja göngu. Eftir 6-12
ferðir í gönguverkefninu AF STAÐ á Reykjanesið sumarið Ž09 er hægt að
skila seðli og vera með í potti sem dregið verður úr í lok síðustu göngu
6. sept. Þrír vinningar í boði. Athugið að smá breytingar hafa orðið á
ferðum frá upphaflegri göngudagskrá.

Nánari upplýsingar um ferðir eða breytingar á ferðum eru á
www.sjfmenningarmidlun.is  eða í gsm 6918828 Sigrún Jónsd. Franklín,
sjf at internet.is  .





More information about the Gandur mailing list