[Gandur] Jólaspjall Þjóðfræðistofu - 19. desember 2009

Kristinn H. M. Schram kristinn at akademia.is
Mon Dec 7 14:19:03 GMT 2009


Jólaspjall Þjóðfræðistofu
19. desember 2009, kl. 13
Laugardaginn 19. desember mun Þjóðfræðistofa blása til þjóðfræðiþings,
útgáfuhófs og menningardagskrár. Auk þess að miðla af rannsóknum
verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar
útgáfur.   Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum.
Jólaspjallið verður haldið í Bragganum á Hólmavík en Café Riis býður
upp á létt jólahlaðborð á vægu verði.


Á dagskránni:

Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu, segir frá starfseminni á árinu
Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur, segir frá nýútkominni bók sinni
Eve Online sem gefin er út af Þjóðfræðistofu
Jón Þór Pétursson þjóðfræðingur, segir frá mastersverkefni sínu og
rannsóknarverkefni Þjóðfræðistofu um íslenska matarhefð
Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri á Þjóðfræðistofu, segir frá
samtímasöfnun á leikjum íslenskra barna
Sigurður Atlason framkvæmdastjóri Strandagaldurs, kynnir
samstarfsverkefni um jólaendurminningar Strandamanna
Heimildamyndin Leitin að Gísla Suurinpojka
Jón Jónsson menningarfulltrúi og þjóðfræðingur, flytur jólahugvekju
Söngflokkurinn Fúmm fúmm fúmm flytur jólalög
Höfundar lesa upp úr jólabókum
	Vilborg Davíðsdóttir - Auður
	Eiríkur Örn Nordahl - Gæska

Fjölbreytt ferðaþjónusta á svæðinu. Nánar auglýst síðar. Frekari
upplýsingar á vefsíðu Þjóðfræðistofu www.icef.is,  í netfanginu
dir at icef.is og hjá forstöðumanni í síma 8661940.


More information about the Gandur mailing list