[Gandur] Heimsókn á Strandir frá Edinborgarháskóla: "The John Levy Iceland Collection: Work in Progress"

Kristinn Schram dir at icef.is
Mon Aug 17 17:13:43 GMT 2009


Þann 26. ágúst næstkomandi mun Katherine M. Campbell, lektor í
þjóðfræði við Edinborgarháskóla, sækja Þjóðfræðistofu heim á Strandir.
Þar  mun hún segja frá nýhöfnu samstarfsverkefni um hinn mikilvirka
safnara John Levy og söfnun hans hér á landi.  Levy safnaði þjóðfræðum
og tónlist um allan heim en gríðarlegt safn liggur eftir hann í
Edinborgarháskóla.  Söfnun hans og upptökur hér á landi vöktu mikla
athygli á sínum tíma og gátu meðal annars af sér útgáfu hljómplatna
með íslenskum þjóðlögum og kvæðasöng.  Flutt verða sýnishorn af
upptökum Levy. Þar sem margir eru óvanir hinum fagra skoska hreim
verður einnig stiklað á stóru á hinu ástkæra ylhýra.

Erindið fer fram á Kaffi Galdri á Hólmavík kl. 20.00.


Sjá nánar um safn John Levy:
http://www.celtscot.ed.ac.uk/archives.htm#archives_levy

 og Þjóðfræðistofu:  www.icef.is


More information about the Gandur mailing list