[Gandur] Menningar- og sögutengd ganga í Garði

Sigrún Jónsdóttir sigruj at hi.is
Tue Aug 11 11:11:08 GMT 2009


AF STAÐ á Reykjanesið
menningar- og sögutengd gönguferð

Mæting er við bæjarskiltið við innkomuna í Garð við Garðbraut, 
sunnudaginn 16. ágúst kl 11. Gengið verður með leiðsögn um hluta af
gamalli þjóðleið Garðstíg sem lá til Keflavíkur. Til baka verður gengið
með ströndinni. Svæðið býr yfir ótal mörgum sögum og minjum. Þátttökugjald
er kr. 1000. Frítt fyrir börn undir 12 ára aldri. Vegalengdin er um 6 km
og tekur 3 – 4 tíma með stoppum. Gott er að vera í góðum gönguskóm og með
nesti. Gengið í hrauni og grasi. Sjá nánar um Garð og aðra þjónustu á
www.sv-gardur.is Ferðamálasamtök Suðurnesja styrkja ferðina. Samtökin hafa
staðið fyrir því að láta stika gamlar þjóðleiðir á Reykjanesskaganum,
útbúa myndkort af svæðinu og gáfu út tvo bæklinga, gönguleiðalýsingar
fyrir Garðstíg og Sandgerðisveg Ž08.

Gangan er tíunda ferðin af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum um
hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með
leiðsögn sumarið Ž09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk
safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 4 - 12
gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá veglega
vinninga. Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að
muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir eru velkomnir.

Nánari upplýsingar um ferðir
Sigrún Jónsd. Franklín
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf at internet.is/gsm. 6918828




More information about the Gandur mailing list