[Gandur] Menningar- og sögutengd ganga

Sigrún Jónsdóttir sigruj at hi.is
Fri Aug 7 06:56:43 GMT 2009


AF STAÐ á Reykjanesið
menningar- og sögutengd gönguferð

Mæting er við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd,  sunnudaginn 9. ágúst
kl 11. Gengið verður með leiðsögn um Kálfatjarnarsvæðið og hluta af
gamalli þjóðleið, Almenningsvegi, er lá áleiðis í Voga..Til baka verður
gengið um heiðina. Svæðið býr yfir ótal mörgum sögum og minjum.
Þátttökugjald er kr. 1000. Frítt fyrir börn undir 12 ára aldri.
Vegalengdin er um 6 km og tekur 3 – 4 tíma með stoppum. Gott er að vera í
góðum gönguskóm og með nesti. Gengið í hrauni og grasi. Ferðin kemur í lok
Fjölskylduhátíðar í Vogum sjá nánar á www.vogar.is

Gangan er níunda ferðin af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum um
hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með
leiðsögn sumarið Ž09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk
safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 4 - 12
gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá veglega
vinninga. Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að
muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir eru velkomnir.

Nánari upplýsingar um ferðir
Sigrún Jónsd. Franklín
menningarmiðlari
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf at internet.is/gsm. 6918828





More information about the Gandur mailing list