[Gandur] Menningar- og sögutengd ganga

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Apr 15 14:58:45 GMT 2009


Menningar- og sögutengd ganga um Gerðavelli, sögusvið  
Grindavíkurstríðs, Junkara og búskapar í Grindavík.

Menningar- og sögutengd ganga í boði Grindavíkurbæjar og  
Saltfiskssetursins verður laugardaginn 18. apríl og hefst kl. 13:00.  
Gangan hefst við Stóru-Bót með vígslu á sjötta söguskiltinu sem sett  
er upp í Grindavík.  (Rétt hjá stóra fjarskiptamastrinu  við þéttbýli  
Grindavíkur)

Gengið verður með ströndinni að Virkinu og Engelskulág þar sem 15  
Englendingar voru drepnir í Grindavíkurstríðinu árið 1532. Síðan  
verður gengið yfir Rásina, ef fært er, í átt að gerði Junkara en þeir  
voru þýskir menn sem voru hér á 14. og 16. öld og ýmsar sögur fara af.  
Á Gerðavöllum má jafnframt sjá ýmsar minjar um búskap, stekk, rétt  
o.fl. Ýmislegt verður skoðað sem  fyrir augu ber á leiðinni. Ómar  
Smári Ármannsson og Sigrún Franklín munu sjá um fræðsluna. Gangan  
tekur 1-2 klukkutíma með fræðslustoppum. Gengið er í grasi og sandi að  
mestu og því er gott að vera í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð.

Gangan er liður í viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og  
Grindavíkurbæjar ´09 sjá nánar á www.grindavik.is


Nánari upplýsingar gefur

Sigrún Jónsd. Franklín

verkefnastjóri

gsm 6918828

sjf at internet.is






More information about the Gandur mailing list