[Gandur] Forum: Haustþing Þjóðfræðistofu - Skráning í vettvangsferð og mat

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Sep 10 14:04:06 GMT 2008


*
Haustþing Þjóðfræðistofu -   Skráning í vettvangsferð og mat


*

Þjóðfræðistofa býður alla velkomna á Haustþing,  laugardaginn 13. 
september kl. 15:00, á Hólmavík þar sem fræðasetrið verður kynnt fyrir 
áhugasömum. Þá mun Cliona O'Carroll flytja erindi um gerð þjóðfræðilegra 
útvarpsþátta en Cliona er lektor við Háskólann í Cork á Írlandi og situr 
í fagráði Þjóðfræðistofu. Þá verður farið í vettvangsferð um nátturu og 
minjar Stranda og slegin upp veisla.

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á 
Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að 
hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa 
menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun 
menningarsögu. Á Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og 
miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum 
samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista. Á meðal 
yfirstandandi verkefna eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu 
og gerð heimildamyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur 
Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, 
þar sem veittar eru upplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, 
listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

Erindi Cliona O'Carroll nefnist "How's it going, boy?": community 
ethnography for radio in Cork, Ireland. Þar fjallar hún um hið 
svokallaða Northside Folklore Project sem er samfélagsdrifin 
þjóðfræðisöfnun þar sem safnað var frásögnum fólks í Cork á Írlandi. 
Gerð var þjóðfræðileg útvarpsþáttaröð sem kannaði borgina frá sjónarhóli 
íbúanna og endurspeglaði þannig fjölbreyttan þjóðernisbakgrunn og 
persónulegar upplifanir fjölmargra Corkverja.  Verkefnið vakti upp  
margar spurningar um samspil þjóðfræði og fjölmiðlunar, fólksflutninga 
og staðarvitund  og hvaða hagnýtu möguleikar kunni að felast í 
samfélagslegum þjóðfræðiverkefnum. Nánar um verkefnið á 
http://www.ucc.ie/research/nfp/.  Erindið verður flutt á ensku.

Skráning í vettvangsferð, mat og allar frekari upplýsingar gefur 
Kristinn Schram - netfang kristinn at akademia.is .



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080910/801d220a/attachment.html


More information about the Gandur mailing list