[Gandur] Sagnakvöld í Flagghúsinu í Grindavík

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Sat Nov 15 12:45:55 GMT 2008


Sagnakvöld í Flagghúsinu í Grindavík

Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20-22 verður sagnakvöld í Flagghúsinu (á
horni Verbrautar og Víkurbrautar), í umsjón sjf menningarmiðlunar.
Sagnakvöldið er liður í viðburða- og menningardagskrá  
Saltfisksetursins og
Grindavíkurbæjar 2008 og er öllum opið.

Fyrstu jarðboranir í Svartsengi.
Ísleifur Jónsson, verkfræðingur frá Einlandi í Grindavík segir fróðlegar
og skemmtilegar sögur frá upphafi framkvæmda í Svartsengi, fyrir  
rúmum 30
árum síðan. Þær urðu grunnurinn að stofnun Hitaveitu Suðurnesja.

„Kvennó“.
Guðveig Sigurðardóttir, fyrrum formaður kvenfélags Grindavíkur segir frá
öflugri starfsemi „Kvennó“ frá upphafi. „Kvennó“ stóð m.a fyrir
útiskemmtunum í Svartsengi, víkivakanámskeiðum, skógrækt og reisti
félagsheimili svo fátt eitt sé nefnt. Starfsemin má segja að hafi verið
undirstaða menningarstarfsemi í Grindavík.

Vegagerð í Grindavík.
Gunnar Mattason, verkstjóri og tækjamaður vann lengi við vegagerð í
Grindavík. Hann lenti í ýmsu m.a. að stór hellir, Dollan opnaðist og
blasti við honum á Gíghæðinni. Margt annað ótrúlegt gerðist við
vegavinnuna sem hann mun miðla til gesta.

Á milli atriða sjá Stigamenn um sönginn. Tilvalið er að taka með sér
vinkonur og vini og skella sér á sagnakvöld, njóta menningararfleiðar og
kaffiveitinga  á vægu verði.
Bókin Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni fyrri sagnakvölda
verður á sérstöku tilboðsverði þetta kvöld.

Nánari upplýsingar
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari
gsm 6918828/ sjf at internet.is





More information about the Gandur mailing list