[Gandur] Kitlandi frásögn um fortíðina. Fyrirlestur á á Landnámssýningunni Reykjavík 871±2

runa at thjodminjasafn.is runa at thjodminjasafn.is
Fri Mar 14 10:49:27 GMT 2008


Kitlandi frásögn um fortíðina. Fyrirlestur á Landnámssýningunni Reykjavík 
871±2  í Aðalastræti 16 þriðjudaginn 18. mars kl. 17. 

Þriðjudaginn 18. mars kl 17 flytur Hjörleifur Stefánson arkitekt 
fyririlestur í Aðalstræti 16. Hjörleifur var verkefnisstjóri við gerð 
Landnámssýningarinna Reykjavík 871±2 . Þungamiðja sýningarinnar er vel 
varðveitt rúst af skála frá 10. öld sem fannast við fornleifauppgröft í 
Aðalstræti 16 árið 2001. Ákveðið var að forverja rústina, varðveita hana 
innan dyra og gera umhverfis hana sýningu um lífið á landnámsöld. Við 
sýingargerðina var stuðst við niðurstöður fræðimanna í fornleifafræði, 
sagnfræði og líffræði en til þess að miðla fróðleiknum er notuð nýjasta 
margmiðlunartækni sem vekur fortíðina til lífsins. Sýningin hefur hlotið 
einróma lof gesta, eldir sem yngri, innlendra og erlendra. Hún hlaut 
íslensku safnaverðlaunin 2006 og NODEM verðlaunin (Nordic Digital 
Excellence in Museums), sem veitt eru fyrir bestu starfænu miðlun í 
söfnum. 
Sýningin er nú tilnefnd til EMYA2008 verðlaunanna (European Museum of the 
Year Award 2008) en þau verðlaun verða afhent í Dyflini í maí. 
Margmiðlunarefni frá sýningunni má finna á vefsetrinu www.reykjavik871.is 

Í fyrirlestri sínum mun Hjörleifur m.a. ræða um þá hugmyndafræði og þær 
aðferðir sem beitt var við sýningargerðina til að skapa kitlandi frásögn 
um fortíðina úr jarðfundnum fornleifum. 

Sigurborg Hilmarsdóttir verkefnisstjóri
Landnámssýningunni  Reykjavík  871±2
Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
Sími 4116370 / 6647370 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080314/5aba4e73/attachment.html


More information about the Gandur mailing list